Höldum áfram að hreyfa okkur
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Alm/86461790_2208432369463952_7953543025689362432_o.png?proc=400x400)
„Ísland á iði í 28 daga - 30 mínútur á dag“ er facebooksíða þar sem ÍSÍ setur inn fjölbreytta hreyfingu, fróðleik, myndir, myndbönd og almenna skemmtun sem mun nýtast öllum þeim sem áhuga hafa í þær vikur sem samkomubannið er við líði.
Á vefsíðu ÍSÍ hér má sjá samantekt af hugmyndum af hreyfingu frá sérsamböndum ÍSÍ, félögum og stofnunum sem birst hefur á facebook síðu verkefnisins.