Uppfærðar leiðbeiningar fyrir íþróttamannvirki
![](/library/Myndir/Verkefnin-okkar/EMB%c3%86TTI%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=400x400)
Embætti landlæknis hefur nú uppfært leiðbeiningar fyrir íþróttamannvirki sem nú eru komnar á vef Embættis landlæknis, www.covid.is.
Í þessari uppfærslu (5. júní 2020) eru helstu breytingar frá fyrra skjali að tveir kaflar hafa bæst við:
- um golfiðkun
- um almenningshlaup
Leiðbeiningarnar er að finna hér.
Einnig er rétt að benda á að það er búið að útbúa ýmar leiðbeiningar bæði fyrir fyrirtæki og þjónustuaðila sem sjá má hér.
Þar er til að mynda tengill á Leiðbeiningar fyrir sund- og baðstaði og baðstaði í náttúrunni sem sjá má hér.
ÍSÍ hvetur alla til að kynna sér þetta vel og koma þessum upplýsingum á framfæri við þá sem gætu haft gagn af.