Ársþing USVS - Nýr formaður
24.06.2020
Á 50. ársþingi Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu (USVS) var Fanney Ásgeirsdóttir kosin nýr formaður USVS. Fanney tekur við embættinu af Þorsteini Matthíasi Kristinssyni. Aðrir í stjórn eru Sæunn Káradóttir, Sigmar Helgason, Ragnar Þorsteinsson og Árni Jóhannsson.
Á þinginu fékk Birna Sólveig Kristófersdóttir afhenda viðurkenningu sem Íþróttamaður USVS 2019 og Stephanie Ósk Ingvarsdóttir fékk afhenda viðurkenningu sem efnilegasti íþróttamaður USVS 2019.
Nánar má lesa um kjörið á vefsíðu USVS hér.
Á myndunum með fréttinni má sjá Birnu og Stephanie annars vegar og Fanneyju hins vegar.