Hulda með Instagram ÍSÍ
24.11.2020
Þann 25. nóvember ætlar Guðrún Hulda Sigurjónsdóttir, frjálsíþróttakona og kúluvarpari í flokki F20, að taka yfir story á Instagrami ÍSÍ.
Á þessu ári hefur Hulda sett tvö Íslandsmet í kúluvarpi í flokki F20. Lengsta kastið hennar er frá því á Íslandsmóti fatlaða þegar að hún kastaði kúlunni 10,35 metra. Hulda hefur keppt þrisvar sinnum á Evrópumeistaramóti fatlaðra, einu sinni á heimsmeistaramóti fatlaðra og einu sinni á alþjóðlega mótinu Global Games. Hulda er í 18. sæti á heimslista.
Fylgstu með degi í lífi Huldu hér á Instagrami ÍSÍ miðvikudaginn 25. nóvember.