Íþróttaboðorðin 10
08.01.2021
Íþróttir eru vinsælasta tómstundaiðkun barna á Íslandi en rúmlega níu af hverjum tíu börnum stunda íþróttir með íþróttafélagi einhvern tímann á ævinni. Á Íþróttaþingi ÍSÍ 2015 var barna- og unglingastefna ÍSÍ endurskoðuð en hún var fyrst samþykkt á Íþróttaþingi ÍSÍ árið 1996. Í stefnunni er mikil áhersla lögð á að íþróttir eigi að vera fyrir alla, þær þurfi að vera skemmtilegar og að leikurinn spili stóran sess. Barna- og unglingastefnunni til stuðnings voru Íþróttaboðorðin tíu mörkuð.
Hér má sjá stefnu ÍSÍ í íþróttum barna og unglinga.
Hér má nálgast bæklinginn Íþróttir - Barnsins vegna.