Síðasti skiladagur umsókna í Ferðasjóð íþróttafélaga
![](/library/Myndir/Logo/ISI-logo_2012a%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=400x400)
Í dag er síðasti skiladagur fyrir umsóknir um styrk úr Ferðasjóði íþróttafélaga fyrir keppnisferðir á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2020.
Umsóknarsvæðið er opið til miðnættis í kvöld. Ekki verður hægt að sækja um eftir að umsóknarfresturinn rennur út.
Nánari upplýsingar veitir Halla Kjartansdóttir skrifstofustjóri ÍSÍ, netfang halla@isi.is, sími 514 4000.