Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
16

Ný reglugerð tekur gildi þann 10. maí

07.05.2021

Heilbrigðisráðherra hefur nú gefið út nýja reglugerð sem tekur gildi 10. maí og gildir til og með 26. maí. Með henni eru gerðar tilslakanir á íþróttastarfi. Helstu breytingar í reglugerð heilbrigðisráðherra sem snerta íþróttastarfið eru eftirfarandi:

  • Heimilt verður að hafa að hámarki 75 þátttakendur í hverju rými á æfingum og í keppni.
  • Heimilt verður að hafa að hámarki 150 manns í hverju rými á áhorfendasvæðum að uppfylltum skilyrðum skv. 3. grein reglugerðar heilbrigðisráðherra og að hámarki þrjú rými fyrir áhorfendur í hverri byggingu. Skilyrðin eru eftirfarandi:  Allir gestir séu sitjandi og ekki andspænis hver öðrum. Allir gestir séu skráðir í númeruð sæti, a.m.k. nafn, kennitala og símanúmer. Skráin skal varðveitt í tvær vikur og eytt að þeim tíma liðnum. Allir gestir noti andlitsgrímu nema þegar neytt er drykkjar- eða neysluvöru. Tryggt sé að fjarlægð milli ótengdra gesta sé a.m.k. 1 metri.  Komið verði eins og kostur er í veg fyrir frekari hópamyndun fyrir viðburð, í hléi og eftir viðburð. Skipuleggjendum viðburða er skylt að tryggja þegar gestir eru ekki í sætum, svo sem fyrir og eftir viðburð og í hléi, að ekki komi fleiri saman en 50 manns og að virt sé 2 metra nálægðartakmörkun milli ótengdra aðila. Þrátt fyrir að heimilt sé að hafa hlé á viðburðum skal biðja gesti um að halda kyrru fyrir í sætum sínum. Þá er sala eða boð um veitingar ekki heimil í hléi. Umgengni í hverju hólfi skal vera í samræmi við leiðbeiningar sóttvarnalæknis þar að lútandi svo koma megi í veg fyrir blöndun hólfa. 

    Sé eitthvert ofangreindra skilyrða ekki uppfyllt er hámarksfjöldi á viðburði 50 manns í hverju rými.Gæta þarf að tveggja metra lágmarksfjarlægð og nota grímur sé ekki hægt að tryggja hana.

  • Sund- og baðstaðir mega opna fyrir 3/4 af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Börn fædd 2015 eða síðar telja ekki með í hámarksfjölda.
  • Skíðasvæði mega opna fyrir 3/4 af hámarksfjölda gesta en þar verður að gæta að tveggja metra lágmarksfjarlægð og nota grímur sé ekki hægt að tryggja hana.

Sjá frétt á vef heilbrigðisráðuneytis.

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra, sem gildir til 26. maí 2021.