Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Verulegar afléttingar á samkomutakmörkunum

19.10.2021

Á miðnætti taka gildi nýjar reglur um samkomutakmarkanir og munu þær gilda til og með 17. nóvember. Eftirfarandi eru helstu atriði er snerta íþróttahreyfinguna:

  • Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 500 í 2000 manns. Börn fædd 2006 og síðar telja ekki með í fjöldatölu.
  • Heimilt verður að hafa allt að 2000 manns í hverju rými á æfingum og í keppnum fullorðinna.
  • Heimilt verður að hafa allt að 2000 manns í hverju rými í áhorfendasvæðum.
  • Heimilt verður að hafa ótakmarkaðan fjölda áhorfenda ef allir gestir fæddir 2005 og fyrr framvísa neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi sem má ekki vera eldra en 48 klst.
  • Skráningarskylda fellur úr gildi og því munu viðburðarhaldarar ekki lengur þurfa að skrá áhorfendur með nafni, símanúmeri og kennitölu.
  • Almennt mun 1 metra nálægðarregla ennþá gilda nema á sitjandi viðburðum og á viðburðum þar sem hraðpróf eru notuð.
  • Grímuskylda fellur úr gildi en þó er mælt með því að fólk noti grímur þar sem ekki verður hægt að viðhafa 1 metra fjarlægð frá ótengdum aðilum.

Áfram er mikilvægt að huga vel að sótthreinsun á sameiginlegum snertiflötum, loftræstingu og persónubundnum sóttvörnum. Einnig er vert að minna á leiðbeiningar frá embætti landlæknis og almannavörnum um smitrakningu í íþróttahreyfingunni sem má nálgast hér

Frétt á vef heilbrigðisráðuneytis.
Reglugerð heilbrigðisráðherra sem gildir frá 20. október til 17. nóvember.
Minnisblað sóttvarnalæknis frá 18. október 2021.