Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

27

Framlenging á gildandi reglugerð og smitrakning í íþróttum

11.01.2022

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar nr. 1484/2021 sem hefði átt að falla úr gildi á morgun, þann 12. janúar hefur verið framlengd um þrjár vikur. Reglur sérsambanda gilda því óbreyttar áfram næstu þrjár vikurnar.

Af gefnu tilefni vil Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands minna á leiðbeiningar um smitrakningu í íþróttum sem má nálgast hér. Einnig er hægt að skoða viðmið smitrakningateymis hér á covid.is. Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að smittölur í samfélaginu eru ansi háar þessa dagana og því hefur verið mikið að gera hjá smitrakningarteyminu. Ekki er alltaf hægt að ná í smitrakningarteymið til að fá svör og þegar upp kemur smit á æfingu eða í íþróttakeppni er gott ef þjálfarar og aðrir sem koma að skipulaginu séu meðvitaðir um ofangreindar leiðbeiningar og geti brugðist við á viðeigandi hátt. Í leiðbeiningunum er hægt að sjá þau viðmið sem smitrakningarteymið notast við en auðvitað eru aðstæður mismunandi og geta verið flóknar í íþróttahreyfingunni. Ef upp kemur smit í ykkar röðum skulu þið endilega styðjast við leiðbeiningarnar og sinna þessu eftir bestu getu miðað við þær upplýsingar sem þið hafið hverju sinni.

Hér er hægt að lesa allt um smitgát og hér um sóttkví en að lokum er einnig vert að benda á breyttar reglur um sóttkví fyrir einstaklinga sem hafa verið þríbólusettir eða fengið tvær bólusetningar og fengið COVID-19. Allt um nýja reglugerð í tengslum við sóttkví má lesa hér á vef Heilbrigðisráðuneytisins.