Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
22

Reykjavíkurleikarnir (RIG) 2022 hefjast um helgina

27.01.2022

 

Reykjavíkurleikarnir (Reykjavík International Games) - RIG 2022, sem Íþróttabandalag Reykjavíkur stendur fyrir í samstarfi við sérsambönd ÍSÍ og íþróttafélögin í Reykjavík,  hefjast um næstu helgi.
Leikarnir skiptast í tvo hluta, líkt og áður, og boðið er upp á fjölbreytta dagskrá viðburða. Fyrri hluti leikanna fer fram dagana 29. janúar - 1. febrúar nk. og seinni hluti leikanna fer síðan fram dagana 2. febrúar - 6. febrúar nk.

Það ættu allir að geta fundið sér spennandi viðburði til að fylgjast með í báðum hlutum leikanna.

Hér er að finna dagskrá leikanna.

Facebook síða leikanna.