Framlengdur umsóknarfrestur - Styrkir vegna COVID-19
20.07.2022
Þann 5. julí sl. var opnað fyrir umsóknir um styrki til íþrótta- og æskulýðshreyfingarinnar vegna COVID-19. Nú hefur verið ákveðið að lengja umsóknarfrest vegna stuðnings stjórnvalda til og með þriðjudagsins 16. ágúst nk. eða um tvær vikur. Á þeim degi þurfa fullunnar umsóknir eða drög að umsóknum að hafa borist á netfangið umsokn_c19@isi.is
Fyrir þá sem skila inn drögum að umsóknum (þ.e. þar sem vantar einhver fylgiskjöl eða undirskriftir) verður boðið upp á að sækja um viðbótarfrest. Lengd þess frest getur verið mismunandi eftir þörfum umsóknaraðila.
Frekari upplýsingar um ferli umsókna má finna hér.