Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
20

Heiðranir á afmælishófi Skíðafélags Dalvíkur

15.11.2022

 

Skíðafélag Dalvíkur fagnaði 50 ára afmæli um síðastliðna helgi. Afmælisveisla var haldin föstudaginn 11. nóvember og svo var opið hús í menningarhúsinu Bergi á laugardeginum, þar sem sögu félagsins var gerð góð skil með sýningu sem opin verður almenningi næstu daga. Foreldrafélag félagsins var með kaffihúsið og er talið að hátt í 300 manns hafi komið til að fagna með félaginu.

Í tilefni 50 ára afmælisins var gefið út afmælisrit sem Óskar Þór Halldórsson ritstýrði en þar má meðal annars finna umfjöllun um þau þrekvirki sem sjálfboðaliðar félagsins hafa unnið í gegn um tíðina, auk þeirra miklu afreka sem íþróttafólk félagsins hefur áorkað.

Ýmsar viðurkenningar voru veittar á afmælishófinu og meðal annars voru veitt þrjú Gullmerki ÍSÍ. Merkin hlutu þeir
 Björgvin Hjörleifsson, Óskar Óskarsson og Brynjólfur Sveinsson, fyrir áratugastarf í þágu félagsins og skíðaíþróttarinnar.  Hafsteinn Pálsson 2. varaforseti ÍSÍ afhenti viðurkenningarnar í afmælishófinu og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri. 

Myndir með frétt