Ráðstefna á degi sjálfboðaliðans, 5. desember
29.11.2022
Mennta- og barnamálaráðuneytið boðar til ráðstefnunnar „Alveg sjálfsagt - sjálfboðaliðar í íþrótta- og æskulýðsstarfi”, á alþjóðlegum degi sjálfboðaliðans, mánudaginn 5. desember nk. kl. 12:00 - 15:45 á Hilton Reykjavík Nordica (gamla Pizza Hut).
Opið er fyrir skráningar og kemst takmarkaður fjöldi að. Skráningu lýkur á miðnætti, fimmtudaginn 1. desember nk. Frítt er inn á ráðstefnuna og eru allir velkomnir.