Hóf íþróttafólks ársins 2022
27.12.2022
Fimmtudaginn 29. desember nk. fer fram sameiginlegt hóf ÍSÍ og Samtaka íþróttafréttamanna (SÍ) þar sem ÍSÍ afhendir viðurkenningar til íþróttafólks sérsambanda ÍSÍ og kjör SÍ á Íþróttamanni ársins, Liði ársins og Þjálfara ársins verður tilkynnt. Hófið fer fram í Silfurbergi í Hörpu, tónlistarhúsi.
Fyrirtækin þrjú sem standa að Ólympíufjölskyldu ÍSÍ, þ.e. Icelandair, Íslensk getspá og Toyota, gefa verðlaunagripi til allra íþróttakvenna og íþróttamanna sérsambanda ÍSÍ. Listi yfir útnefningar sérsambanda á íþróttafólki ársins verður birtur á heimasíðu ÍSÍ að hófi loknu.
Sýnt verður beint á RÚV þegar kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á ofangreindum heiðurstitlum verður lýst og hefst útsendingin kl. 19:40. Samtök íþróttafréttamanna hafa birt lista yfir topp 10 í kjörinu um Íþróttamann ársins 2022, sem reyndar telur ellefu einstaklinga að þessu sinni þar sem tveir hlutu jafna kosningu. Á listanum er að finna eftirtalið íþróttafólk:
- Anton Sveinn McKee, sund
 - Elvar Már Friðriksson, körfuknattleikur
 - Gísli Þorgeir Kristjánsson, handknattleikur
 - Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrna
 - Guðmundur Ágúst Kristjánsson, golf
 - Hilmar Örn Jónsson, frjálsíþróttir
 - Kristín Þórhallsdóttir, kraftlyftingar
 - Ómar Ingi Magnússon, handknattleikur
 - Sandra Sigurðardóttir, knattspyrna
 - Tryggvi Snær Hlinason, körfuknattleikur
 - Viktor Gísli Hallgrimsson, handknattleikur
 
Í kjöri SÍ um Þjálfara ársins 2022 urðu einnig tveir einstaklingar jafnir í kjörinu og á listanum eru því eftirtaldir fjórir þjálfarar:
- Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari karlalandsliðsins í handknattleik
 - Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari karlaliðs Breiðabliks í knattspyrnu
 - Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari karlaliðs Vals í handknattleik
 - Þórir Hergeirsson, þjálfari kvennalandsliðs Noregs í handknattleik
 
Efstu þrjú liðin í kjöri SÍ um Lið ársins 2022:
- Íslenska karlalandsliðið í handknattleik
 - Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu
 - Valur, meistaraflokkur karla í handknattleik