Ársþing ÍS
11.04.2023
Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS) var haldið 23. mars sl. í Íþróttamiðstöðinni í Vogum. Farið var yfir hefðbundin störf, s.s. árskýrslur, skýrslu stjórnar, ársreikning og fleira. Þingið gekk vel en að þessu sinni lágu ekki mörg mál fyrir til afgreiðslu.
Í stjórn bandalagsins voru kjörin: Gunnar Jóhannesson, formaður, Hilmar Egill Sveinbjörnsson, varaformaður, Kjartan Adolfsson, gjaldkeri, Atli Þór Karlsson, ritari og Sigríður Þorleifsdóttir, meðstjórnandi.
Meðfylgjandi myndir eru frá þinginu.