Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Olga Bjarnadóttir, fulltrúi Íslands í tækninefnd Smáþjóðaleikanna

03.06.2023

 

Hér á Smáþjóðaleikunum eru það ekki bara keppendur, dómarar og þjálfarar sem taka þátt í leikunum.  Olga Bjarnadóttir, 2. varaforseti í nýrri framkvæmdarstjórn ÍSÍ, stendur í ströngu í tækninefnd Smáþjóðaleikanna.  Einn fulltrúi kemur frá hverri þjóð og er Olga fulltrúi Íslands.  

Hlutverk tækninefndar á leikunum sjálfum er að fylgjast með að framkvæmd Smáþjóðaleikanna fylgi tæknireglum þeirra. Hlutverk Olgu var að fylgjast með keppni í íþróttagreininni Rugby 7´s og þá framkvæmd keppninnar í Rugby 7´s með tilliti til tæknireglna leikanna. Vera einnig framkvæmdaraðilum innan handar ef upp koma vafamál, athugasemdir eða spurningar er snúa að tæknireglum. 
 
Fyrir leikanna tók Olga þátt í ýmsum undirbúningsfundum og hefur því einnig staðið í ströngu fyrir leikanna.  Starfið var margvíslegt, allt frá því að rýna vel í handbókina, sem gefin er út með öllum upplýsingum, sem og að passa að allt sé rétt þar er snýr að keppnisgreinum, auk þess að yfirfara þátttökulista, fjölda þjóða og keppenda í hverri grein og margt fleira.