Lokahátíð Smáþjóðaleikanna fór fram í gær
Keppni á Smáþjóðaleikunum 2023 á Möltu lauk formlega í gær, 3. júní. Gærdagurinn var einnig síðasti keppnisdagur hjá íslensku keppendunum í frjálsíþróttum, skotíþróttum og siglingum en keppendur í öðrum greinum höfðu þegar lokið keppni.
Lokahátíðin fór svo fram í gærkvöldi og voru Egill Blöndal, júdókappi og Íris Anna Skúladóttir, frjálsíþróttakona fánaberar fyrir hönd Íslands.
Hátíðin var öll hin glæsilegasta og hófst á því að íþróttafólk allra landa gekk inn á svið undir dúndrandi tónlist og flugeldasýningu. Íslensku keppendurnar voru glæsilegir á sviðinu. Forseta Ólympíunefndar Andorra var afhentur fáni Smáþjóðaleikanna, með formlegum hætti, til merkis um að þeir hafi nú tekið við sem gestgjafar næstu leika sem haldnir verða í Andorra árið 2025. Lag keppninnar, Shine your light, var síðan flutt á krafmikinn hátt og skemmtilegt dansatriði flutt sem áhorfendur gátu hrifist með. Leikunum var svo slitið með einstaklega flottri flugeldasýningu.
Hér er heimasíða leikanna í ár.
Hér er lag keppninnar.