Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

27

Vésteinn Hafsteinsson vekur athygli

11.09.2023

 

Vésteinn Hafsteinsson hefur komið af krafti í starf Afreksstjóra ÍSÍ síðan hann hóf störf 1. maí síðastliðinn og vakið athygli.  Hann telur að ein stærsta stefnubreyting íslensks íþróttalífs í áraraðir sé í farvatninu en hann ásamt starfsfólki íþróttamálaráðuneytisins vinnur hörðum höndum að ýmsum breytingum og bætingum innan íþróttahreyfingarinnar.  Hann hrósar starfsfólki innan íþróttahreyfingarinnar sem hann telur hingað til hafa unnið að góðum árangri þrátt fyrir lítið fjármagn og fátt starfsfólk og hefur fulla trú á að Ísland geti orðið í fremstu röð nái þessi stefnubreyting fram að ganga.

Viðtal sem tekið var við Véstein fyrir helgi má finna hér.  

Mynd/visir.is