Af hverju er mikilvægt að konur séu í forystu í íþróttum?
Í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars næstkomandi standa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) fyrir ráðstefnunni Konur og íþróttir, forysta og framtíð.
Á ráðstefnunni eru konur í fyrsta sæti. Konur í stjórnum félaga, konur í dómgæslu og konur í þjálfun. Rætt verður um helstu áskoranir sem konur í íþróttum standa frammi fyrir og þau tækifæri sem þeim bjóðast. Rætt verður um mikilvægi þess að konur séu áberandi í forystu í íþróttahreyfingunni. Á það við um þátttöku í stjórnum íþróttafélaga, í ráðum og nefndum, dómgæslu eða þjálfun á afreksstigi.
Ráðstefnan fer fram á Fosshóteli, Þórunnartúni 1 á milli klukkan 09:00 – 12:30. Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá á viðburðinn hér og er skráningin opin til 6. mars. Fyrir þau sem ekki komast, verður streymt frá ráðstefnunni. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, sem á sæti í framkvæmdarstjórn ÍSÍ, mun stýra ráðstefnunni.
Dagskrá
Setning ráðstefnunnar
Olga Bjarnadóttir, annar varaforseti ÍSÍ
Eru einhverjar áskoranir kvenna í forystu íþrótta?
Viðar Halldórsson, félagsfræðingur
Ferðalagið innan knattspyrnuheimsins
Klara Bjartmarz, fyrrverandi framkvæmdastjóri KSÍ
Tækifæri til að hafa áhrif
Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands
Pallborðsumræður
Ragnhildur Skúladóttir stýrir pallborði;
Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri FSÍ
Hannes S. Jónsson, framkvæmdastóri KKÍ
Guðmunda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ÍA
Klara Bjartmarz, fyrrverandi framkvæmdastjóri KSÍ
Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambandsins
Að fóta sig í karllægum heimi
Bríet Bragadóttir, alþjóðlegur knattspyrnudómari
Segðu já!
Erna Héðinsdóttir, dæmir á ÓL í París í lyftingum
Mikilvægi dómgæslu í íþróttum
Hlín Bjarnadóttir, dæmir á ÓL í París í áhaldafimleikum
Hvernig breytum við leiknum?
Hulda Mýrdal, Heimavöllurinn
Hvenær borðið þið eiginlega?
Díana Guðjónsdóttir, handboltaþjálfari
Að þjálfa konur vs karla, er einhver munur?
Gunnar Páll Jóakimsson, frjálsíþróttaþjálfari
Konur í þjálfun og þjálfun á konum í knattspyrnu
Lára Hafliðadóttir, situr í stjórn HKK
Hvað gerum við nú? – stutt rafræn samantekt
Áfram veginn!
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ
Boðið verður upp á morgunhressingu og er viðburðurinn opinn öllum.
Nánari upplýsingar um viðburðinn á Facebook: Konur & íþróttir - forysta og framtíð.
ÍSÍ og UMFÍ hvetja öll kyn til að mæta og láta sig varða um málefnið!