Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

12.09.2024 - 12.09.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
10.10.2024 - 10.10.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
1

Hákon Þór lýkur keppni í 23. sæti

03.08.2024

 

Seinni hluta keppninnar í skotfimi er nú lokið og aðeins úrslitin eftir, en sex stigahæstu keppendurnir fóru áfram. Hákon Þór Svavarsson hitti í fyrri lotunni í morgun 22 af 25 skotum sínum og 25 af 25 í seinni lotunni, sem er frábær árangur. Heildarskor hans eftir þessa tvo hluta, í dag og í gær, er því 116 af 125 sem þýðir 23. sæti af 30 keppendum. Hákon Þór fer því ekki áfram í sex manna úrslit að þessu sinni og hefur lokið þátttöku sinni á Ólympíuleikunum í París.

Hér má finna upplýsingar um gengi Hákons í keppninni í dag.

ÍSÍ óskar Hákoni innilega til hamingju með frábæran árangur á hans fyrstu Ólympíuleikum!

Myndir með frétt