Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.10.2024 - 10.10.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
21.11.2024 - 21.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
27

Með harðfisk og hangikjöt að heiman. Undirbúningur og þátttaka Íslands á Sumarólympíuleikunum í London árið 1948

12.09.2024

 

Í gær, miðvikudaginn 11. september, hélt Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður hjá RÚV og sagnfræðingur, útgáfuteiti en hann hann gaf nýverið út bókina Með harðfisk og hangikjöt að heiman. Undirbúningur og þátttaka Íslands á Sumarólympíuleikunum í London árið 1948. Bókin byggir að stofninum til á BA-ritgerð Þorkels í sagnfræði við Háskóla Íslands en það er Sögufélagið sem gefur bókina út. Fjölmenni var á svæðinu og mættu margir frá íþróttahreyfingunni, þar á meðal Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, og Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ. 
 
Í bókinni er farið yfir áhugaverðan tíma í íslenskri íþróttasögu í alþjóðlegu samhengi. Margir frægir Íslendingar koma við sögu, eins og til dæmis Gunnar Huseby, kúluvarpari, sem fór ekki á leikana og Jón Leifs, tónskáld, sem keppti í listasamkeppni Ólympíuleikanna. Með harðfisk og hangikjöt að heiman fjallar um undirbúning og þátttöku Íslendinga á þessum sögulegu Ólympíuleikum út frá kenningum um þjóðarstolt og ríkiserindrekstur.

Í umfjöllun um bókina segir:
Ólympíuleikarnir í London árið 1948 voru merkilegir fyrir margra hluta sakir. Vegna seinni heimsstyrjaldarinnar höfðu ekki verið haldnir Ólympíuleikar í 12 ár, en aðstæður í London voru erfiðar svona stuttu eftir stríð og stundum er talað um „meinlætaleikana“ af þeim sökum. Þetta voru líka fyrstu sumarleikarnir sem Ísland keppti á eftir lýðveldisstofnun og Íslendingar höfðu metnað til að standa sig vel. Ísland sendi því stóran flokk á leikana og íslenskar konur þreyttu frumraun sína á Ólympíuleikum. 
Undirbúningur Íslendinga gekk ekki þrautalaust fyrir sig. Íslendingar glímdu við gjaldeyrisskort, í Bretlandi var matur af skornum skammti og ólympíuflokkurinn tók því um 100 kíló af íslenskum mat með í nesti. Að mörgu þurfti að huga, bæði varðandi þjálfun og aðstöðu keppenda, mikill hiti og erfiðar aðstæður í London settu strik í reikninginn og árangur Íslendinganna olli vonbrigðum.
Benda má áhugasömum á að bókina má fá í helstu bókabúðum og í netsölu hjá Sögufélagi.
 
ÍSÍ fagnar þessu ánægjulega framtaki Þorkels Gunnars og óskar honum um leið til hamingju með útgáfu bókarinnar! 

Myndir/Mummi Lú.

Myndir með frétt