Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
21.11.2024 - 21.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
19

Sigríður Inga ráðin í síðasta lausa starf svæðistöðva íþróttahreyfingarinnar

02.10.2024

 

Á dögunum var lokið við að ráða í síðasta lausa starf fulltrúa á svæðisstöð íþróttahreyfingarinnar á Norðurlandi vestra en á vormánuðum voru auglýst sextán störf á átta starfsstöðvum um allt land og bárust um 200 umsóknir um störfin. 

Sigríður Inga Viggósdóttir var ráðin starfið en hún hefur mikla reynslu úr íþrótta- og tómstundastarfi. Hún var sviðstjóri Almenningsíþróttasviðs Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) í fjögur ár (2012–2016), skrifstofustjóri hjá Körfuknattleikssambandi Íslands (KKÍ) 2016–2019, verkefnastjóri Vinaliðaverkefnis 2019–2022 og verkefnastjóri frístundar hjá Skagafirði 2019–2023. Seinasta vetur var hún verkefnastjóri körfuknattleiksdeildar Tindastóls. Sigríður Inga er annar tveggja svæðisfulltrúanna á svæðinu og vinnur þar með Halldóri Lárussyni. Sigríður Inga er Skagfirðingur í húð og hár og er búsett á Sauðárkróki. Hún er með BSc í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík og var á sama tíma í náminu og Halldór. Sigríður Inga hóf störf í gær, mánudaginn 30. september.

„Mér líst rosalega vel á þetta verkefni. Við erum að gera margt gott í íþróttahreyfingunni. Það verður gaman að kynnast því góða fólki sem rekur íþróttahreyfinguna um allt land af dugnaði og ósérhlífni og sjá hvað það hefur að segja, fara yfir málin og athuga hvernig við getum gert gott starf enn betra,“ sagði Sigríður Inga Viggósdóttir við ráðninguna.
 

Svæðisfulltrúar svæðisstöðva íþróttahéraðanna eru því orðnir sextán á átta starfssvæðum um allt land. Hlutverk svæðisstöðvanna er að þjónusta íþróttahéruðin í nærumhverfi sínu með samræmdum hætti. Horft er til þess að sterkari íþróttahéruð og svæðisstöðvar um allt land auki skilvirkni innan íþróttahreyfingarinnar og geri þeim kleift að takast á við núverandi og fyrirséð verkefni, styrkja stefnumótandi vinnu og aðgerðir á landsvísu og stuðla þannig að farsæld barna og annarra sem nýta þjónustu hreyfingarinnar.

Svæðisstöðvunum er ætlað að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum auk þess að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstaka áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Tillögur um stofnun svæðisstöðvanna voru samþykktar á þingi ÍSÍ vorið 2023 og á þingi UMFÍ haustið 2023.

ÍSÍ óskar Sigríði Ingu innilega til hamingju með nýja starfið og góðs gengis í verkefnunum sem framundan eru.