Verkefninu Göngum í skólann 2024 formlega lokið
Þá er verkefninu Göngum í skólann formlega lokið í ár. Að þessu sinni tóku 77 grunnskólar á Íslandi þátt og er virkilega ánægjulegt að sjá hvað skólastjórnendur hafa tekið Göngum í skólann verkefninu vel. Árlega taka milljónir barna þátt, frá yfir fjörutíu löndum víðs vegar um heiminn, í verkefninu Göngum í skólann. Nánar um verkefnið hér.
Markmið verkefnisins er margþætt:
• að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla með því að fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar og
• að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann.
Einnig að:
• stuðla að heilbrigðum lífsstíll,
• draga úr umferð við skóla og þar með úr umferðarþunganum sem myndast,
• draga úr mengun og
• draga úr hraðakstri nálægt skólum, ásamt því að
• stuðla að vitundarvakningu um virkan ferðamáta og
• minna á umhverfismál.
Það er því mikill ávinningur fyrir alla og lærdómur sem hlýst af því að taka þátt í Göngum í skólann. Að auki munu þrír þátttökuskólar verða dregnir út í dag, fimmtudaginn 3. október, og fá þeir hver um sig 150.000 kr. gjafabréf hjá Altis, íþróttaverslun í Hafnarfirði, sem selur vörur til að nota á skólalóðinni eða í íþróttasalnum. Starfsmenn Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ) munu hafa samband við þá skóla sem verða dregnir út en einnig verða nöfn skólanna birt á heimasíðu verkefnisins á morgun, föstudaginn 4. október.
Hér má sjá fleiri myndir.
ÍSÍ þakkar öllum þeim skólum sem tóku þátt í verkefninu fyrir þátttökuna og hvetur alla til að halda áfram að ganga til og frá heimili sínu í haust og vetur þrátt fyrir að verkefninu sé lokið í bili.