Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
21.11.2024 - 21.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
19

Hinsegin börn og ungmenni í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi

20.10.2024

 

ÍSÍ vekur athygli á eftirfarandi viðburði:

Mánudaginn 28. október kl.12.30-14.00 halda Samtökin '78 kynningu á fræðsluefni undir yfirskriftinni Hinsegin börn og ungmenni í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi.  Kynningin verður haldin í Íþróttamiðstöðinni Engjavegi 6, í sal B og C á 3. hæð.  
Kynntir verða þrír bæklingar, sem allir innihalda leiðbeiningar til þeirra sem bera ábyrgð á íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi, en hver bæklingur hefur sitt sérkenni:
I. Stöðvum fordóma og mismunun
II. Sýnilegur stuðningur
III. Aðstaða og mót
Samhliða bæklingunum verða kynnt tvö plaköt, 
⚪️Fordómabyggingin annars vegar, sem sýnir hvernig fordómar leiða með stigvaxandi hætti til ofbeldis og 
⚪️Vítahring fordóma í íþróttum hins vegar, sem tekur til þeirra aðstæðna sem geta leitt til brottfalls hinsegin barna og ungmenna úr skipulögðu starfi.
Efnið er afrakstur verkefnis sem Samtökin '78 vann með og fyrir mennta- og barnamálaráðuneytið og er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum hinsegin fólks. 
Eitt af meginmarkmiðum ÍSÍ er að berjast gegn hvers konar mismunun og ofbeldi í íþróttum, hvort sem um er að tefla mismunun vegna kynþáttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana, kynferðis, kynhneigðar eða af öðrum toga. ÍSÍ hvetur öll, sem málið varðar, til að mæta á kynninguna.