Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Bæklingurinn Sports for our children
Hlutfall íþróttakvenna að aukast á Ólympíuleikum
Ársþing GLÍ 2021
Þann 6. mars sl. fór fram 57. ársþing Glímusambands Íslands (GLÍ). Ásmundur H. Ásmundsson, Margrét Rún Rúnarsdóttir og Marín Laufey Davíðsdóttir gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Jana Lind Ellertsdóttir, Einar Eyþórsson og Hjörtur Elí Steindórsson komu ný inn í stjórn. Auk þeirra eru Svana Hrönn, formaður og Guðmundur Stefán Gunnarsson í stjórn GLÍ.
Íþróttir fyrir börn með mismunandi stuðningsþarfir
Umf. Njarðvík og Keflavík íþrótta- og ungmennafélag hafa tekið höndum saman og bjóða í sameiningu upp námskeið í knattspyrnu og körfuknattleik fyrir börn með mismunandi stuðningsþarfir. Æfingarnar eru undir handleiðslu hæfra þjálfara af báðum kynjum þar sem iðkendum á aldrinum 6–13 ára er mætt á þeirra forsendum.
99. sambandsþing UMSB - Nýr sambandsstjóri
99. sambandsþing Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB) var haldið miðvikudaginn 4. mars í Hjálmakletti í Borgarnesi. Dagskrá þingsins var hefðbundin og í samræmi við lög sambandsins.
Umsóknarfrestur íþrótta- og tómstundastyrkja framlengdur
Vegna Covid-19 faraldursins hefur félags- og barnamálaráðherra sett af stað sérstakt verkefni þar sem börn tekjulægri heimila eiga rétt á sérstökum íþrótta- og tómstundarstyrk á skólaárinu 2020-2021. Styrkurinn er veittur grunnskólabörnum sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí árið 2020. Umsóknarfrestur vegna þessara styrkja hefur verið framlengdur til 15. apríl 2021.
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna í dag
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er í dag, 8. mars, og í ár ber dagurinn yfirskriftina: ,,Choose To Challenge“ eða „Veldu að ögra“. Þema dagsins í ár snýr því að áskorun, að taka ákvörðun um að ögra heiminum því aðeins þannig breytast hlutirnir. Á vef International Women´s Day segir: ,,A challenged world is an alert world and from challenge comes change. So let's all choose to challenge." Ársþing SÍL
Mótahald aðildarfélaga SÍL var með besta móti á árinu þó félagsstarf hafi liðið fyrir þær takmarkanir sem settar voru vegna samkomuhalds. Fjölgun hefur verið hjá aðildarfélögum SÍL og nokkrar væntingar til sumarsins sem er framundan með móta og félagsstarf.
Sundfélagið Óðinn Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Sundfélagið Óðinn á Akureyri fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ miðvikudaginn 3. mars síðastliðinn. Það var vel við hæfi að afhenda viðurkenninguna á sundlaugarbakka Sundlaugar Akureyrar í fallegu norðlensku veðri.
75. ársþingi KSÍ streymt í beinni
75. ársþing Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) fór fram þann 27. febrúar, en það var haldið í fyrsta sinn með rafrænum hætti frá höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal.
97. ársþing UMSK - Nýr formaður
97. ársþing Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK) fór fram þann 25. febrúar sl. rafrænt. Guðmundur Sigurbergsson var kosinn formaður UMSK, en hann tekur við af Valdimar Leo Friðrikssyni sem verið hefur formaður síðustu tuttugu ár.
5. Þríþrautarþing ÞRÍ
Fimmta þríþrautarþing Þríþrautarsambands Íslands (ÞRÍ) var haldið þann 27. febrúar sl. Hafsteinn Pálsson annar varaforseti ÍSÍ sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ.