Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Lífshlaupið - hvatningarleikur
Vorfjarnám 1. og 2. stigs í þjálfaramenntun
ÍSÍ úthlutar afreksstyrkjum – Breyttar áherslur
Í dag, miðvikudaginn 30. janúar var haldinn blaðamannfundur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal þar sem kynntar voru úthlutanir afreksstyrkja fyrir árið 2013.
Styrkveitingar ÍSÍ að þessu sinni nema samtals rúmlega 81 milljónum króna en úthlutað er rúmlega 71 m.kr. úr Afrekssjóði ÍSÍ og 10 m.kr. úr Sjóði ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna.
Auk styrkja Afrekssjóðs ÍSÍ og Styrktarsjóðs ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna mun íslenskt íþróttafólk njóta styrkja frá Ólympíusamhjálpinni á árinu. Skíðasamband Íslands (SKÍ) mun hljóta styrki vegna fimm íslenska skíðamanna í tengslum við undirbúning þeirra fyrir Vetrarólympíuleikana í Sochi 2014 og verður sú úthlutun kynnt nánar síðar.Sundfélagið Óðinn fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Sundfélagið Óðinn á Akureyri fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ á uppskeruhátíð félagsins sem haldin var í Brekkuskóla á Akureyri þriðjudaginn 8. janúar síðatliðinn. Það var formaður félagsins, Halla Bergþóra Halldórsdóttir sem tók við viðurkenningunni úr höndum Viðars Sigurjónssonar skrifstofustjóra ÍSÍ á Akureyri. Félagið hefur nú rétt til að nota nafnbótina fyrirmyndarfélag ÍSí til næstu fjögurra ára.Lyftingasamband Íslands 40 ára
Lyftingasamband Íslands fagnaði 40 ára afmæli sambandsins 26. janúar síðastliðinn með hátíðardagskrá og hátíðarkvöldverði í samstarfi við Alþjóðlegu Reykjavíkurleikana. Fyrr þann sama dag var alþjóðlega RIG mótið í ólympískum lyftingum í aðstöðu Lyftingafélags Reykjavíkur, Skeifunni 8.
Fulltrúar ÍSÍ í afmælisdagskrá sambandsins voru Gunnar Bragason gjaldkeri ÍSÍ, Helga Steinunn Guðmundsdóttir ritari ÍSÍ og Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir stjórnarmeðlimur ÍSÍ. Á meðfylgjandi mynd má sjá Ingibjörgu Bergrós og Helgu Steinunni afhenda Lárusi Páli Pálssyni formanni LSÍ afmælisplatta og blómvönd í tilefni dagsins.Eysteinn Þorvaldsson sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ
Júdósamband Íslands hélt upp á 40 ára afmæli sitt 19. janúar síðastliðinn með afmælismóti í júdó og afmælishófi í Laugardalshöll í kjölfarið. Sérstakir gestir sambandsins á þessum tímamótum voru Sergey Soloveychik, forseti Evrópka júdósambandsins, Michal Vachun varaforseti Evrópska júdósambandsins og fyrrum landsliðþjálfari Íslands í júdó og Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ. Á afmælismótinu kepptu nokkrir af fremstu júdókeppendum Evrópu í dag.
Við þetta tækifæri sæmdi Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ Eystein Þorvaldsson Heiðurkrossi ÍSÍ fyrir frábær störf í þágu júdóíþróttarinnar. Eysteinn var kjörinn fyrsti formaður Júdósambands Íslands við stofnun þess árið 1973 og gegndi því embætti í 10 ár.
RIG ráðstefna um afreksþjálfun tókst vel
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Íþróttabandalag Reykjavíkur og Háskólinn í Reykjavík stóðu í sameiningu fyrir ráðstefnu í tilefni af Reykjavíkurleikunum. Innihald ráðstefnunnar tók mið af afreksþjálfun og voru allir fyrirlesararnir erlendir í þetta sinn. Niðurstöður Ánægjuvogarinnar kynntar víða um land
Heimsókn frá íþróttafræðinemum í HÍ
Sigurjón Pétursson endurkjörinn formaður Kraftlyftingasambands Íslands
Ársþing Kraftlyftingasambands Íslands var haldið í húsnæði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands þann 19. janúar síðastliðinn. Góð mæting var á þingið. Sigurjón Pétursson var endurkjörinn formaður KRAFT til eins árs en einnig fór fram kjör varamanna í stjórn. Eftirtaldir aðilar voru kjörnir í varastjórn: Auðunn Jónsson, Óskar Ingi Víglundsson og Aron Du Lee Teitsson. Þá fór fram góð og gagnleg umræða um klassískar kraftlyftingar og fleira og í kjölfarið voru samþykktar tillögur frá Gróttu um að afreksstefna KRAFT taki mið af klassískum kraftlyftingum og að lágmörk verði sett fyrir skráningu klassískra meta og fyrir landsliðhóp.
Fulltrúar ÍSÍ á þinginu voru Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ, sem jafnframt ávarpaði þingið og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri. Á myndinni er Sigurjón Pétursson formaður í ræðustól.
Afreksþjálfun - Ráðstefna 24. janúar
Íþróttabandalag Reykjavíkur, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt Háskólanum í Reykjavík standa að íþróttaráðstefnu í tilefni af Reykjavíkurleikunum, fimmtudaginn 24. janúar og fer ráðstefnan fram í húsakynnum HR stofu M101. Þrír áhugaverðir erlendir fyrirlesarar munu flytja erindi um afreksþjálfun og fara fyrirlestrarnir allir fram á ensku.Evrópumótið í hópfimleikum á Íslandi haustið 2014
Fimleikasamband Íslands hefur fengið það staðfest frá Fimleikasambandi Evrópu, að tilboði þeirra um að halda Evrópumót í Hópfimleikum haustið 2014 hefur verið samþykkt. Þetta verður 10 skiptið sem Evrópumótið fer fram, en fyrsta opinbera mótið fór fram 1996 í Finnlandi.
Íslensku landsliðin hafa verið mjög sigursæl á evrópumótum undanfarin ár og komu heim með tvo meistaratitla frá síðasta móti sem haldið var í Danmörku haustið 2012.