Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Kvennahlaupið 25 ára í dag
Í dag, 30. júní 2014, eru 25 ár liðin frá því að fyrsta Kvennahlaup ÍSÍ fór fram. Hlaupið var haldið 30. júní 1990 í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ og tóku um 2.500 konur þátt í Garðabæ og á sjö stöðum á landsbyggðinni.
Lovísa Einarsdóttir íþróttakennari var einn af frumkvöðlum Kvennahlaupsins og var hún í lykilhlutverki við stofnun hlaupsins árið 1990 og síðar framkvæmd þess.
Í dag er Kvennahlaupið einn útbreiddasti og fjölmennasti íþróttaviðburður sem haldinn er á Íslandi ár hvert. Um 15.000 konur tóku þátt á 105 stöðum hérlendis sem erlendis í 25 ára afmælishlaupinu sem fram fór laugardaginn 14. júní síðastliðinn. Íþróttir án mismununar
Sjötta IWG Heimsráðstefnan um konur og íþróttir (6th IWG World Conference on Women and Sport) var haldin í Helsinki í Finnlandi 12. – 15. júní. Yfir átta hundruð konur sóttu ráðstefnuna frá tæplega 100 löndum. Ráðstefnan er m.a. haldin með stuðningi frá Alþjóðaólympíuhreyfingunni, IOC, WHO og UNESCO. Fyrsta ráðstefnan var haldin árið 1994 í Brighton í Englandi og hefur ráðstefnan verið haldin á fjögurra ára fresti síðan. Markmið ráðstefnunnar hefur verið að fjölga konum í íþróttum og auka þátttöku þeirra í þjálfun og stjórnun innan hreyfingarinnar.
Ertu góð vítaskytta?
58 ár frá fyrsta landsleik íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik
Jón Páll Hreinsson sæmdur Gullmerki ÍSÍ
14. Héraðsþing Héraðssambands Vestfjarða (HSV) var haldið þann 5. júní í Háskólasetri Vestfjarða. 46 þingfulltrúar mættu til þingsins sem tókst vel í alla staði. Í ársskýrslu stjórnar kemur fram að árið hafi verið mjög starfsamt hjá sambandinu og samstarf við Ísafjarðarbæ tekist með miklum ágætum. Íþróttaskóli HSV hefur verið að vaxa og í nýútkominni skýrslu um skólann kemur í ljós að foreldrar og nemendur skólans eru mjög ánægðir með starfið. Siða- og starfsreglur HSV voru samþykktar, en í skýrslu stjórnar kemur fram að þær séu lykillinn að betra, faglegra og öruggara umhverfi innan íþróttahreyfingarinnar á starfsvæði HSV.
Íþróttafélagið Nes Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Íþróttafélagið Glóð tók þátt í göngu á Ólympíudaginn
Myndir frá 25. Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ
Sævar Már Guðmundsson fær Silfurmerki BLÍ
42. ársþing Blaksambands Íslands var haldið síðastliðinn laugardag og funduðu 25 þingfulltrúar. Formaður BLÍ, Jason Ívarsson, flutti hvatningarræðu til hreyfingarinnar um fagmennsku í vinnubrögðum í uppbyggingarstarfinu. Stefán Jóhannesson og Kristján Geir Guðmundsson voru endurkjörnir í stjórn BLÍ til tveggja ára.Alþjóðlegi Ólympíudagurinn í dag
Á hverju ári er haldið upp á Alþjóðlega Ólympíudaginn þann 23. júní út um allan heim. Þessi viðburður er í tilefni af því að 23. júní árið 1894 var Alþjóða Ólympíunefndin stofnuð og nútíma Ólympíuleikarnir urðu til. Hér á landi hefur þessi dagur verið haldinn hátíðlegur undanfarin ár. Markmiðið með deginum er að hvetja fólk til að koma saman, hreyfa sig og hafa gaman. Ólympíudagurinn er einnig kjörinn vettvangur til að kynna gildi Ólympíuhreyfingarinnar sem eru; vinátta, virðing og ávallt að gera sitt besta.