Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
21

25.02.2015

Ertu nokkuð að gleyma þér?

Ertu nokkuð að gleyma þér?Í dag lokar skráningarkerfi sjálfboðaliða á Smáþjóðaleikum 2015 formlega. ÍSÍ hvetur þá sem ekki hafa skráð sig til að skrá sig í dag á heimasíðu leikanna. www.iceland2015.is
Nánar ...
25.02.2015

Ný afreksstefna SÍL samþykkt á ársþingi sambandsins

Ný afreksstefna SÍL samþykkt á ársþingi sambandsinsÁrsþing Siglingasambands Íslands var haldið laugardaginn 21.febrúar síðastliðinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Þingforseti var Gísli Árni Eggertsson frá ÍTR og fyrrum stjórnarmaður SÍL. Mæting á þingið var heldur slök en fyrir þinginu lá meðal annars að samþykkja nýja afreksstefnu fyrir siglingaíþróttina. Var hún samþykkt með breytingum en einnig var samþykkt mótaskrá fyrir árið 2015 og dagsetningar fyrir árið 2016.
Nánar ...
25.02.2015

Geir endurkjörinn formaður KSÍ

Geir endurkjörinn formaður KSÍÁrsþing Knattspyrnusambands Íslands fór fram á Hótel Hilton Nordica laugardaginn 14. febrúar síðastliðinn. Geir Þorsteinsson var endurkjörinn formaður sambandsins til næstu tveggja ára, með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, en Geir fékk að þessu sinni mótframboð frá Jónasi Ými Jónassyni. Engar breytingar urðu á stjórn sambandsins að þessu sinni.
Nánar ...
21.02.2015

Lukkudýr Smáþjóðaleikanna 2015 heitir Blossi

Lukkudýr Smáþjóðaleikanna 2015 heitir BlossiÍ dag eru 100 dagar þar til Smáþjóðaleikarnir verða settir á Íslandi. Að því tilefni var lukkudýri Smáþjóðaleikanna gefið nafnið Blossi. ÍSÍ efndi til nafnasamkeppni í janúar um nafn á lukkudýri Smáþjóðaleika 2015. Þátttökurétt áttu allir 4.—7. bekkir í grunnskólum landsins.
Nánar ...
21.02.2015

100 dagar til stefnu

100 dagar til stefnuÍ dag eru 100 dagar þar til Smáþjóðaleikarnir verða settir á Íslandi. Að því tilefni eru tvær nýjar myndir úr myndaröðinni „Náttúrulegur kraftur“ birtar til viðbótar við þær níu sem nú þegar hafa verið birtar.
Nánar ...
19.02.2015

Gunnar endurkjörinn formaður ÍS

Gunnar endurkjörinn formaður ÍSÞing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS) var haldið í golfskála Golfklúbbs Vatnsleysustrandar í gærkvöldi. Fyrir þinginu lá hefðbundin dagskrá og að henni lokinni fóru fulltrúar allra aðildarfélaga ÍS stuttlega yfir starfsemi sinna félaga á nýliðnu ári. Gunnar Jóhannesson var endurkjörinn formaður ÍS. Friðrik Einarsson var fulltrúi ÍSÍ á þinginu.
Nánar ...
18.02.2015

Hnefaleikafélag Reykjaness fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Hnefaleikafélag Reykjaness fyrirmyndarfélag ÍSÍHnefaleikafélag Reykjaness fékk viðurkenningu frá ÍSÍ sem fyrirmyndarfélag laugardaginn 14. febrúar síðastliðinn á móti sem félagið hélt í Keflavík þennan dag. Það var Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti formanni félagsins Birni Snævari Björnssyni viðurkenninguna ásamt fána fyrirmyndarfélaga. Á myndinni eru frá vinstri þau Margrét Guðrún Sævarsdóttir hnefaleikamaður Reykjanesbæjar 2014, Björn Snævar Björnsson og Sigríður Jónsdóttir.
Nánar ...
16.02.2015

Heiðurshöll ÍSÍ

Heiðurshöll ÍSÍÁsgeir Sigurvinsson og Pétur Guðmundsson voru útnefndir í Heiðurshöll ÍSÍ á athöfninni Íþróttamaður ársins 2014 í janúar sl. Nú er hægt að sjá myndbönd um þeirra feril á heimasíðu ÍSÍ.
Nánar ...
14.02.2015

Undirritun samstarfssamninga vegna Smáþjóðaleika

Undirritun samstarfssamninga vegna SmáþjóðaleikaForseti ÍSÍ Lárus L. Blöndal, borgarstjóri Dagur B. Eggertsson og mennta- og menningarmálaráðherra Illugi Gunnarsson undirrituðu í gær samstarfssamninga vegna Smáþjóðaleika 2015. Undirritunin fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.
Nánar ...
13.02.2015

Myndarlegur stuðningur ríkis og Reykjavíkurborgar vegna Smáþjóðaleikanna 2015

Myndarlegur stuðningur ríkis og Reykjavíkurborgar vegna Smáþjóðaleikanna 2015Forseti ÍSÍ Lárus L. Blöndal, borgarstjóri Dagur B. Eggertsson og mennta- og menningarmálaráðherra Illugi Gunnarsson undirrituðu í dag samstarfssamninga vegna Smáþjóðaleika 2015. Undirritunin fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Framlag Reykjavíkurborgar er allt að 20 m.kr. í formi leigukostnaðar vegna íþróttamannvirkja og um 200 m.kr. vegna endurnýjunar og viðhalds áhalda í keppnismannvirkjum. Framlag ríkisins vegna Smáþjóðaleikanna á fjárlögum 2014 og 2015 er alls 100 m.kr.
Nánar ...
13.02.2015

Hestamannafélagið Sleipnir fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Hestamannafélagið Sleipnir fyrirmyndarfélag ÍSÍHestamannafélagið Sleipnir fékk endurnbýjun viðurkenningar félagsins sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ 30. janúar síðastliðinn. Það var Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti formanni félagsins Magnúsi Ólasyni viðurkenninguna á aðalfundi félagsins á Selfossi. Á myndinni eru þau Sigríður og Magnús.
Nánar ...