Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Mjög góð þátttaka í vorfjarnámi ÍSÍ í þjálfaramenntun
Vorfjarnámi ÍSÍ í þjálfaramenntun er nú lokið á öllum þremur stigum námsins, 1. 2. og 3. stigi. Þátttakan var mjög góð, 37 þjálfarar luku námi á 1. stigi, 10 þjálfarar luku 2. stigi og 17 þjálfarar luku 3. stigi, samtals 64 þjálfarar. Um er að ræða almennan hluta menntunarinnar sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinahluta menntunarinnar sækja nemendur hjá viðkomandi sérsambandi/sérnefnd ÍSÍ.
Ný persónuverndarlöggjöf 2018
Þann 25. maí 2018 tekur gildi á Íslandi ný reglugerð Evrópusambandsins (ESB) um persónuvernd. Hún leysir af hólmi núgildandi Evrópulöggjöf. Rétt er þó að taka fram að löggjöfin mun hljóta þinglega meðferð Alþingis áður en hún tekur að fullu gildi hérlendis. Öll fyrirtæki, stofnanir og aðrir sem vinna með persónuupplýsingar, hvort heldur um eigið starfsfólk, viðskiptavini, notendur eða aðra, verða að fylgja hinni nýju löggjöf. Persónuvernd, sem framfylgir persónuverndarlöggjöfinni á Íslandi, hefur gefið út leiðbeinandi efni um það helsta sem þarf að undirbúa fyrir gildistöku laganna. Um er að ræða umfangsmestu breytingar sem gerðar hafa verið á persónuverndarlöggjöfinni í tvo áratugi. Í tilkynningu frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins frá 14. apríl 2016 segir að hinar nýju reglur staðfesti að sá grundvallarréttur sem felst í vernd persónuupplýsinga einstaklinga verði tryggður fyrir alla.
Nemendur úr HR í starfsnámi
Þeir Birgir Viktor Hannesson og Marinó Ingi Adolfsson, sem stunda nám í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík, hafa verið í starfsnámi hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands í þrjár vikur. Þeir hafa hjálpað til við nokkur verkefni, m.a. blakmót UMSK og Blaksambands Íslands. Mótið er grunnskólamót fyrir alla nemendur í 4.-7. bekk sem stunda nám við grunnskóla í Kópavogi, Garðabæ og Mosfellsbæ. ÍSÍ þakkar þeim félögum fyrir sýndan áhuga á starfsemi ÍSÍ og óskar þeim góðs gengis í áframhaldandi námi.
Nýjar ÍSÍ fréttir
Fagna afrekum sínum eftir á
Þær aðstæður koma nú reglulega upp þar sem íþróttafólk sem unnið hefur til verðlauna á Ólympíuleikum gerist sekt um lyfjamisferli og missir því verðlaun sín. Það íþróttafólk, sem næst er í röðinni missti því af sínu tækifæri til þess að fagna afrekum sínum á verðlaunapalli á Ólympíuleikum. Íþróttamannanefnd innan IOC hefur unnið að því síðustu mánuði að setja saman ákveðin viðmið fyrir þetta íþróttafólk, um hvernig það geti fengið sín verðlaun afhent og þar með fagnað sínum árangri. Nýlega samþykkti framkvæmdastjórn Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) þessi meginviðmið sem íþróttamannanefndin setti saman.
110 ára afmæli Fram
Knattspyrnufélagið Fram hélt upp á 110 ára afmæli félagsins dagana 30. apríl og 1. maí síðastliðinn
Hjólað í vinnuna í fullum gangi
Ársþing BSÍ
49. þing Badmintonsambands Íslands fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 2. maí sl. Þingið fór í alla staði vel fram og var því stýrt örugglega af þingforsetanum Herði Þorsteinssyni. Fulltrúar frá sex héraðssamböndum og íþróttabandalögum sóttu þingið.
Göngufótbolti fyrir eldri iðkendur
Göngufótbolti er hugsaður til að hvetja eldri borgara og aðra til þess að stunda heilbrigða hreyfingu í góðum félagsskap. Göngufótboltinn hjá Þrótti hóf göngu sína þann 1. desember 2017 á Eimskipsvellinum (gervigrasið) í Laugardal. Vegna veðuraðstæðna var ákveðið að vera með göngufótboltann í Sporthúsinu í Kópavogi. Nú verða æfingarnar færðar aftur á Eimskipsvöllinn. Æfingar í göngufótbolta eru á miðvikudögum kl. 12:15 – 13:15 í allt sumar.
Felix starfsskýrsluskil
Felix er miðlægt tölvukerfi ÍSÍ og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) og heldur utan um íþróttaiðkendur á Íslandi. Kerfið var fyrst tekið í notkun árið 2004. Nýtt og endurbætt kerfi var svo tekið í notkun snemma árs 2017. Samkvæmt 8. grein laga ÍSÍ þá þurfa allir sambandsaðilar ÍSÍ að skila inn starfsskýrslu til ÍSÍ fyrir 15. apríl ár hvert í gegnum Felix kerfið. Framkvæmdastjórn ÍSÍ heimilaði skrifstofu ÍSÍ á fundi sínum 26. apríl 2018 að beita keppnisbanni á félög og deildir sem eru í vanskilum með starfsskýrslur 15. maí nk.
71. ársþing HSS
71. ársþing Héraðssambands Strandamanna var haldið að Laugarhóli í Bjarnarfirði 3. maí 2018. Garðar Svansson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ og bar kveðjur frá forseta, framkvæmdastjórn og starfsfólki ÍSÍ. Garðar þakkaði sérstaklega fyrir móttökur við heimsókn stjórnar ÍSÍ á sambandssvæði HSS síðastliðið haust.
Heiðranir á ársþingi HSÍ
Ársþing Handknattleikssambands Íslands fór fram 28. apríl síðastliðinn. Kjartan Steinbach var sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ og Guðjón L. Sigurðsson og Ásta Óskarsdóttir sæmd Gullmerki ÍSÍ.