Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
100 dagar til Ólympíuleika ungmenna
Ólympíusamhjálpin styrkir íþróttafólk vegna undirbúnings fyrir Tókýó 2020
Í dag var gengið frá samningum Ólympíusamhjálparinnar við sérsambönd ÍSÍ og íþróttafólks þeirra vegna undirbúnings fyrir Ólympíuleikana í Tókýó 2020. Um er að ræða styrki vegna átta einstaklinga frá sex sérsamböndum ÍSÍ.
Ólympíudagurinn í dag
Í dag, þann 23. júní, er Alþjóðlegi Ólympíudagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim og er það í sjötugasta sinn sem dagurinn er haldinn. Hann er haldinn í tilefni af stofnun Alþjóðaólympíunefndarinnar 23. júní árið 1894. Þá má segja að Ólympíuleikar til forna hafi verið endurvaktir og færðir til nútímans. Markmiðið með deginum er að hvetja fólk til að koma saman, hreyfa sig og hafa gaman, en dagurinn er í raun ætlaður öllum óháð íþróttalegri getu. Meginþema í tengslum við daginn eru þrjú: Hreyfa, læra og uppgötva. Á deginum er kjörið að spreyta sig á ýmiss konar íþróttum og þrautum, en ekki einungis íþróttum sem keppt er í á Ólympíuleikunum. Ólympíudagurinn er einnig kjörinn vettvangur til að kynna gildi Ólympíuhreyfingarinnar sem eru; vinátta, virðing og ávallt að gera sitt besta.
Lífshlaupið fer fram allt árið
Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa. Í einstaklingskeppninni geta allir tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið. Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín. í senn.
Ólympíudagurinn 23. júní
Þann 23. júní nk. er Alþjóðlegi Ólympíudagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim og er það í sjötugasta sinn sem dagurinn er haldinn. Hann er haldinn í tilefni af stofnun Alþjóðaólympíunefndarinnar 23. júní árið 1894. Þá má segja að Ólympíuleikar til forna hafi verið endurvaktir og færðir til nútímans. Markmiðið með deginum er að hvetja fólk til að koma saman, hreyfa sig og hafa gaman, en dagurinn er í raun ætlaður öllum óháð íþróttalegri getu. Meginþema í tengslum við daginn eru þrjú: Hreyfa, læra og uppgötva. Á deginum er kjörið að spreyta sig á ýmiss konar íþróttum og þrautum, en ekki einungis íþróttum sem keppt er í á Ólympíuleikunum. Ólympíudagurinn er einnig kjörinn vettvangur til að kynna gildi Ólympíuhreyfingarinnar sem eru; vinátta, virðing og ávallt að gera sitt besta.
Hardy Fink frá FIG hélt fyrirlestur fyrir íslenska fimleikaþjálfara
Helsti fræðslusérfræðingur Alþjóða Fimleikasambandsins (FIG), Hardy Fink, hélt fyrirlestra tvö kvöld í röð nýlega á vegum Fimleikasambands Íslands. Hardy sér um fræðslukerfi FIG, en hann hefur byggt kerfið markvisst upp síðustu áratugina og ferðast heimshorna á milli með fræðslu og ráðgjöf því tengdu. Fimleikasambandið í samstarfi við fræðslunefnd fékk styrk frá Ólympíusamhjálpinni fyrir komu Hardy.
Ár í Evrópuleika
Evrópuleikarnir 2019 fara fram í borginni Minsk í Hvíta-Rússlandi þann 21.-30. júní. Leikarnir eru haldnir á vegum Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC). Ýmis stórmót hafa verið haldin í Minsk síðastliðin ár og eru íþróttaleikvangar og aðrar aðstæður til íþróttakeppni til fyrirmyndar. Keppt verður í 23 íþróttagreinum 15 alþjóðasambanda á leikunum, en samtals fara fram 198 viðburðir á meðan á leikunum stendur.
Þróunarstjóri ITF í Evrópu í heimsókn
Þróunarstjóri Alþjóða Tennissambandsins (ITF) í Evrópu, Vitor Cabral, kom í heimsókn til Tennissambands Íslands á dögunum. Hann heimsótti ÍSÍ og fundaði m.a. með Ragnhildi Skúladóttur sviðsstjóra Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ, Örvari Ólafssyni verkefnastjóra Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ ásamt stjórnarmönnum úr TSÍ. Ísland er það land innan Tennis Europe sem fjærst er meginlandinu og hefur aðeins þrjá innanhúss tennisvelli. Það er mikil áskorun við uppbyggingu nýrra afreksleikmanna. Þrátt fyrir þetta hefur landið öfluga tenniskennslu fyrir alla og mikil áhersla á kennslu barna og ungmenna.
Ljósmyndakeppni til aukinnar meðvitundar á háttvísi
Tyrkneska Ólympíunefndin auglýsir eftir myndum í ljósmyndasamkeppni 1st World Fair Play Photo Contest. Þetta er opin keppni en markmiðið er að auka meðvitund á háttvísi í leik. Búið er að opna fyrir móttöku á myndum, en hægt er að senda inn myndir út nóvember 2018. Allar nánari upplýsingar um ljósmyndakeppnina má finna hér.Námskeið í Ólympíu
Golfmót SÍÓ
Hlaðvarp á Ólympíustöðinni
Ólympíustöðin er ókeypis vettvangur sem sýnir beint frá íþróttaviðburðum allt árið um kring. Á stöðinni eru einnig þáttaseríur sem tengjast hinum ýmsu íþróttagreinum og viðtöl við íþróttafólk, en stöðin leggur áherslu á afreksíþróttamenn og þeirra leið að meiri árangri. Nýlega bættist enn við flóruna hjá Ólympíustöðinni, en vikulega er boðið upp á hlaðvarp (podcast) sem kallast „Hugsaðu eins og Ólympíufari“ (Think like an Olympian).