Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Göngum í skólann verkefnið
Göngum í skólann er enn í fullum gangi. Tilvalið er að hvetja börnin til að velja sér virkan ferðamáta í skólann strax í byrjun skólaárs. Mikilvægt er að fara vel yfir umferðarreglur með börnunum en hægt er að fara á umferðarvefinn www.umferd.is sem er fræðsluvefur um umferðarmál fyrir nemendur í grunnskóla, kennara og foreldra. Vefurinn er til þess fallinn að auka áhuga á umferðaröryggi í skólastarfinu. Þar að auki er mikilvægt að ökumenn gæti sérstakrar varúðar í nálægð við skóla- og íþróttasvæði.
Heiðrun á afmæli Knattspyrnufélagsins Þróttar
Fundur norrænna íþrótta- og ólympíusamtaka
Fundur norrænna íþrótta- og ólympíusamtaka stendur yfir þessa dagana á Hótel Örk í Hveragerði. Fundurinn er árlegur og skiptast löndin á að vera gestgjafar.Ekki harka af þér höfuðhögg!
Ólympíufari og afreksíþróttakona í framkvæmdastjórn ÍSÍ
Dominiqua Alma Belányi og Þórey Edda Elísdóttir stunduðu báðar íþróttir af krafti frá unga aldri. Þórey Edda keppti þrívegis á Ólympíuleikum og Dominiqua á Evrópu- og heimsmeistaramótum. Nú sitja þær í framkvæmdastjórn ÍSÍ. Í nýjasta blaði ÍSÍ frétta er viðtal við þær og má lesa blaðið hér.
Göngum í skólann - Saga frá skóla
Göngum í skólann 2019 fer vel af stað en alls 71 skóli er skráður til þátttöku í verkefninu í ár. Víkurskóli sendi nýlega inn frásögn og myndir á vefsíðu verkefnisins www.gongumiskolann.is, en þátttökuskólar eru hvattir til þess að senda myndir, frásagnir og/eða myndbönd af verkefninu.
Verðlaunapeningar í Tókýó 2020
#BeActive dagurinn
BeActive dagurinn fór fram í Laugardalnum 7. september sl. í tilefni af Íþróttaviku Evrópu sem fer fram 23. – 30. september. Það var mikið um að vera í Laugardalnum en gestir og gangandi fengu að prófa hinar ýmsu íþróttagreinar og hreyfingu svo sem Qigong, parkour, aquazumba, frjálsar íþróttir, frisbígolf, rathlaup, krikket, zumba, götuhokkí, sundknattleik, ruðning og handstöðu- og movement kennslu. Leikhópurinn Lotta skemmti yngstu kynslóðinni og Húlladúllan kenndi ungum og öldnum að húlla. Coca-Cola European Partners Ísland ehf gaf topp.
ÍSÍ fréttir - September 2019
Í dag kemur út nýtt blað af ÍSÍ fréttum. Konur eru áberandi í blaðinu að þessu sinni, en í blaðinu má lesa viðtöl við íslenskar afreksíþróttakonur og Ólympíufara og afreksíþróttakonu sem gegna stjórnarstörfum í dag. Íslenskt afreksíþróttafólk sem stefnir á Ólympíuleikana í Tókýó 2020 segir frá lífi sínu þessa dagana þegar að allt er lagt undir til þess að ná inn á leikana. Farið er yfir Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ og stórafmæli hlaupsins í ár, ásamt þeim fræðsluverkefnum sem næst eru á dagskrá hjá ÍSÍ. Ýmislegt fleira er í blaðinu sem gaman er að skoða.
#BeActive dagurinn á morgun
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands heldur í annað sinn #BeActive daginn í Laugardalnum á morgun laugardaginn 7. september, frá kl. 10-16. Það verður mikið um að vera í Laugardalnum þennan dag en ásamt ýmsum viðburðum á #BeActive daginn þá spilar íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu við Moldóvu kl. 16. Leikhópurinn Lotta mætir á svæðið og boðið verður upp á Topp og Kvennahlaup ásamt fleiri glaðningum. Það er því tilvalið að kíkja í Laugardalinn á morgun og prófa hinar ýmsu íþróttagreinar og hreyfingu. Búið er að færa mikið af viðburðum inn, þannig að veðrið ætti ekki að hafa áhrif.
Göngum í skólann sett í Hofsstaðaskóla
Íþróttasjóður auglýsir eftir umsóknum
Styrkirnir eru ætlaðir íþrótta- og ungmennafélögum á landinu til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana. Einnig eru styrkir til útbreiðslu- og fræðsluverkefna, að þessu sinni verður horft sérstaklega til verkefna sem stuðla að aukinni þátttöku barna af erlendum uppruna. Þá eru veittir styrkir til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi í landinu.