Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
ÍSÍ úthlutar tæplega 462 m.kr. í afreksstyrki
.jpg?proc=NewsListImage) Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur samþykkt tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ að úthlutun fyrir árið 2020, en styrkveitingar ÍSÍ til sambandsaðila nema tæplega 462 milljónum króna.
Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur samþykkt tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ að úthlutun fyrir árið 2020, en styrkveitingar ÍSÍ til sambandsaðila nema tæplega 462 milljónum króna.Fyrirmyndardeild ÍSÍ
 Frjálsíþróttadeild Ungmennafélags Selfoss fékk endurnýjun viðurkenningar sinnar sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ fimmtudaginn 6. febrúar síðastliðinn. Það var Ragnhildur Skúladóttir sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ sem afhenti Helga Sigurði Haraldssyni viðurkenninguna á aðalfundi deildarinnar í Tíbrá á Selfossi. Helgi Sigurður hefur verið formaður deildarinnar í 22 ár og þar með öll árin sem deildin hefur verið Fyrirmyndardeild ÍSÍ eða frá árinu 2009. Á myndinni eru þau Ragnhildur og Helgi Sigurður.

Æfing hugans - Ólympíustöðin
.jpg?proc=NewsListImage) Á Ólympíustöðinni og í smáforriti Ólympíustöðvarinnar má nú finna ráðleggingar frá Ólympíuförum um markmiðasetningu, núvitund, ímyndunarþjálfun og fleira sem allir geta nýtt sér. Afreksíþróttafólk og Ólympíufarar deila sinni reynslu, t.d. um það hvernig yfirstíga á pressu, í myndböndum, viðtölum, greinum o.fl.
Á Ólympíustöðinni og í smáforriti Ólympíustöðvarinnar má nú finna ráðleggingar frá Ólympíuförum um markmiðasetningu, núvitund, ímyndunarþjálfun og fleira sem allir geta nýtt sér. Afreksíþróttafólk og Ólympíufarar deila sinni reynslu, t.d. um það hvernig yfirstíga á pressu, í myndböndum, viðtölum, greinum o.fl. 
Kíktu á Instagram ÍSÍ í dag - Guðni Valur
 Guðni Valur Guðnason, frjálsíþróttamaður og Ólympíufari, mun taka yfir Instagram síðu ÍSÍ @isiiceland í dag, 10. febrúar.
Guðni Valur Guðnason, frjálsíþróttamaður og Ólympíufari, mun taka yfir Instagram síðu ÍSÍ @isiiceland í dag, 10. febrúar.
Skráningarleikur Lífshlaupsins og Rásar2
 Lífshlaupið er í fullum gangi. Á hverjum virkum degi eru dregnir út heppnir þátttakendur sem hafa skráð sig til keppni og fær viðkomandi glaðning frá einum af styrktaraðilum Lífshlaupsins.
Lífshlaupið er í fullum gangi. Á hverjum virkum degi eru dregnir út heppnir þátttakendur sem hafa skráð sig til keppni og fær viðkomandi glaðning frá einum af styrktaraðilum Lífshlaupsins.
Guðni Valur með Instagram ÍSÍ
 Guðni Valur Guðnason, frjálsíþróttamaður og Ólympíufari, mun taka yfir Instagram síðu ÍSÍ @isiiceland nk. mánudag, 10. febrúar.
Guðni Valur Guðnason, frjálsíþróttamaður og Ólympíufari, mun taka yfir Instagram síðu ÍSÍ @isiiceland nk. mánudag, 10. febrúar.
Undirritun viðaukasamnings
Skýrsla starfshóps um skattlagningu á starfsemi sem fellur undir þriðja geirann
 Starfshópur fjármála- og efnahagsráðherra um skattalegt umhverfi þriðja geirans hefur skilað skýrslu til ráðherra. Markmið vinnu hópsins var að leggja fram tillögur til að styrkja skattalegt umhverfi þriðja geirans.
Starfshópur fjármála- og efnahagsráðherra um skattalegt umhverfi þriðja geirans hefur skilað skýrslu til ráðherra. Markmið vinnu hópsins var að leggja fram tillögur til að styrkja skattalegt umhverfi þriðja geirans.Tillaga til þingsályktunar um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni í samráðsgátt
 Drög að tillögu forsætisráðherra til þingsályktunar um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021 – 2025 hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem almenningi og hagsmunaaðilum gefst kostur á að senda inn umsögn við efni tillögunnar.
Drög að tillögu forsætisráðherra til þingsályktunar um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021 – 2025 hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem almenningi og hagsmunaaðilum gefst kostur á að senda inn umsögn við efni tillögunnar. Lífshlaupið sett í morgun
.jpg?proc=NewsListImage) Mikil gleði ríkti í Skarðshlíðarskóla í morgun þegar Lífshlaupið var ræst í þrettánda sinn. Ingibjörg Magnúsdóttir skólastýra bauð gesti velkomna. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri og Þráinn Hafsteinsson, formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ ávörpuðu svo gesti áður en þau kepptu í skemmtilegum þrautm sem Ana og Viktor, íþróttakennarar skólans stýrðu af mikilli snilld. Blossi, lukkudýr ÍSÍ mætti á svæðið öllum til mikillar ánægju. Þegar að dagskrá lauk drifu nemendur og kennarar sig út og hlupu míluna sína. Skarðshlíðarskóli hefur frá haustinu 2018 farið út og hlaupið, gegnið eða skokkað daglega eina mílu. Verkefnið er að skoskri fyrirmynd og heitir „The Daily Mile“ en Skarðshlíðarskóli er fyrsti skólinn á Íslandi til að taka þátt í þessu alþjólega verkefni og óhætt er að segja að mikil ánægja með þátttökuna. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hvetur skóla landsins til að taka upp þetta frábæra verkefni enda þykir það afar einfalt í framkvæmd. Tilvalið að skrá svo hreyfinguna í Lífshlaupið.
Mikil gleði ríkti í Skarðshlíðarskóla í morgun þegar Lífshlaupið var ræst í þrettánda sinn. Ingibjörg Magnúsdóttir skólastýra bauð gesti velkomna. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri og Þráinn Hafsteinsson, formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ ávörpuðu svo gesti áður en þau kepptu í skemmtilegum þrautm sem Ana og Viktor, íþróttakennarar skólans stýrðu af mikilli snilld. Blossi, lukkudýr ÍSÍ mætti á svæðið öllum til mikillar ánægju. Þegar að dagskrá lauk drifu nemendur og kennarar sig út og hlupu míluna sína. Skarðshlíðarskóli hefur frá haustinu 2018 farið út og hlaupið, gegnið eða skokkað daglega eina mílu. Verkefnið er að skoskri fyrirmynd og heitir „The Daily Mile“ en Skarðshlíðarskóli er fyrsti skólinn á Íslandi til að taka þátt í þessu alþjólega verkefni og óhætt er að segja að mikil ánægja með þátttökuna. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hvetur skóla landsins til að taka upp þetta frábæra verkefni enda þykir það afar einfalt í framkvæmd. Tilvalið að skrá svo hreyfinguna í Lífshlaupið. 
Gunnhildur Íþróttamaður ársins 2019 hjá HSH
 Gunnhildur Gunnarsdóttir var valin körfuknattleiksmaður og Íþróttamaður ársins 2019 hjá HSH. Gunnhildur hefur verið ein af allra bestu körfuboltakonum á Íslandi um langt skeið þrátt fyrir ungan aldur. Hún hefur leikið megnið af sínum ferli með Snæfell og er leikjafjöldi hennar með liðinu milli 400 og 500. Gunnhildur hefur unnið marga titla á sínum ferli og verið margoft í liði ársins. Gunnhildur á að baki 52 landsleiki, þar af 36 með A landsliði Íslands en hún hefur átt þar fast sæti síðan 2012. Nálgun Gunnhildar á íþróttinni er aðdáunarverð, ávallt lagt sig 100% fram, er sannur leiðtogi innan vallar sem utan, gefur mikið af sér og er frábær fyrirmynd.
Gunnhildur Gunnarsdóttir var valin körfuknattleiksmaður og Íþróttamaður ársins 2019 hjá HSH. Gunnhildur hefur verið ein af allra bestu körfuboltakonum á Íslandi um langt skeið þrátt fyrir ungan aldur. Hún hefur leikið megnið af sínum ferli með Snæfell og er leikjafjöldi hennar með liðinu milli 400 og 500. Gunnhildur hefur unnið marga titla á sínum ferli og verið margoft í liði ársins. Gunnhildur á að baki 52 landsleiki, þar af 36 með A landsliði Íslands en hún hefur átt þar fast sæti síðan 2012. Nálgun Gunnhildar á íþróttinni er aðdáunarverð, ávallt lagt sig 100% fram, er sannur leiðtogi innan vallar sem utan, gefur mikið af sér og er frábær fyrirmynd.85 ára afmæli Umf. Grindavíkur
 Það var mikið um dýrðir hjá Grindvíkingum um helgina þegar Umf. Grindavíkur fagnaði 85 ára afmæli félagsins og nýtt íþróttahús var formlega vígt.
Það var mikið um dýrðir hjá Grindvíkingum um helgina þegar Umf. Grindavíkur fagnaði 85 ára afmæli félagsins og nýtt íþróttahús var formlega vígt.