Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Ástbjörg Gunnarsdóttir, Heiðursfélagi ÍSÍ kvödd hinstu kveðju
þrótta- og Ólympíusambandið kveður í dag kæran Heiðursfélaga, Ástbjörgu Gunnarsdóttur.Öll félög með virkar reglur og áætlanir
Í stefnu Reykjavíkur í íþróttamálum til ársins 2030 er gerð krafa um að öll félög verði með virkar siðareglur, eineltis- og jafnréttisáætlanir, sem og áætlanir um viðbrögð við hvers kyns ofbeldi. Að gefnu tilefni vill ÍSÍ benda á það efni sem hægt er að nálgast á vefsíðu ÍSÍ og í prentuðu formi á skrifstofu ÍSÍ við Engjaveg 6.
Úthlutun viðbótarframlags ríkisins til íþróttahreyfingarinnar.
Á vormánuðum 2020 gerði Mennta- og menningarmálaráðherra samning við ÍSÍ um að allt að 450 milljónir króna yrði varið til íþróttahreyfingarinnar í fyrsta lið í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að bæta það tjón sem einingar innan hennar urðu fyrir vegna afleiðinga kórónuveirufaraldursins. Var þeim fjármunum ráðstafað með tveimur mismunandi aðferðum og greitt til íþróttafélaga vorið 2020, svokallaðar almennar aðgerðir, og til íþróttafélaga, deilda, sérsambanda og íþróttahéraða að hausti, svokallaðar sértækar aðgerðir.Ábending ÍSÍ og UMFÍ varðandi rafíþróttir/rafleiki
Frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ)
Síðustu misseri hafa nokkur íþrótta- og ungmennafélög innan ÍSÍ og UMFÍ boðið félagsmönnum sínum upp á iðkun rafíþrótta/rafleikja innan starfsemi viðkomandi félaga. Þessi verkefni eru tiltölulega ný af nálinni innan samtakanna en á síðustu þingum þeirra beggja var lagt til að stofna vinnuhópa, sem þegar hefur verið gert, til þess að ná að ramma inn tilgang og markmið slíkrar starfsemi í samræmi við starf og gildi þeirra.Uppfærðar reglur sérsambanda ÍSÍ varðandi áhorfendur
Í ljósi fregna undanfarna daga af smitum í samfélaginu og að beiðni sóttvarnayfirvalda hafa sérsambönd ÍSÍ ákveðið að uppfæra reglur sínar vegna framkvæmdar æfinga og keppni á tímum kórónuveirufaraldurs.Bæklingurinn Sports for our children
Hlutfall íþróttakvenna að aukast á Ólympíuleikum
Ársþing GLÍ 2021
Þann 6. mars sl. fór fram 57. ársþing Glímusambands Íslands (GLÍ). Ásmundur H. Ásmundsson, Margrét Rún Rúnarsdóttir og Marín Laufey Davíðsdóttir gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Jana Lind Ellertsdóttir, Einar Eyþórsson og Hjörtur Elí Steindórsson komu ný inn í stjórn. Auk þeirra eru Svana Hrönn, formaður og Guðmundur Stefán Gunnarsson í stjórn GLÍ.
Íþróttir fyrir börn með mismunandi stuðningsþarfir
Umf. Njarðvík og Keflavík íþrótta- og ungmennafélag hafa tekið höndum saman og bjóða í sameiningu upp námskeið í knattspyrnu og körfuknattleik fyrir börn með mismunandi stuðningsþarfir. Æfingarnar eru undir handleiðslu hæfra þjálfara af báðum kynjum þar sem iðkendum á aldrinum 6–13 ára er mætt á þeirra forsendum.
99. sambandsþing UMSB - Nýr sambandsstjóri
99. sambandsþing Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB) var haldið miðvikudaginn 4. mars í Hjálmakletti í Borgarnesi. Dagskrá þingsins var hefðbundin og í samræmi við lög sambandsins.
Umsóknarfrestur íþrótta- og tómstundastyrkja framlengdur
Vegna Covid-19 faraldursins hefur félags- og barnamálaráðherra sett af stað sérstakt verkefni þar sem börn tekjulægri heimila eiga rétt á sérstökum íþrótta- og tómstundarstyrk á skólaárinu 2020-2021. Styrkurinn er veittur grunnskólabörnum sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí árið 2020. Umsóknarfrestur vegna þessara styrkja hefur verið framlengdur til 15. apríl 2021.
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna í dag
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er í dag, 8. mars, og í ár ber dagurinn yfirskriftina: ,,Choose To Challenge“ eða „Veldu að ögra“. Þema dagsins í ár snýr því að áskorun, að taka ákvörðun um að ögra heiminum því aðeins þannig breytast hlutirnir. Á vef International Women´s Day segir: ,,A challenged world is an alert world and from challenge comes change. So let's all choose to challenge."