Tilkynning frá Lyfjaeftirliti ÍSÍ
08.03.2016 16:23Að gefnu tilefni og í ljósi frétta utan landsteina um jákvæð sýni vegna lyfs sem bættist við á lista Alþjóða lyfjaeftirlitsstofnunarinnar (WADA) yfir bönnuð efni og aðferðir þann 1. janúar sl., vill Lyfjeftirlit ÍSÍ koma því á framfæri að íþróttafólk ber sjálft alltaf og undir öllum kringumstæðum ábyrgð á því sem finnst í lífsýni viðkomandi. Íþróttafólki ber því að ganga úr skugga um að það sem það neytir sé ekki á bannlistanum. Bannlisti WADA gildir á alþjóða vísu.
Ef íþróttamaður þarf nauðsynlega heilsu sinnar vegna að notast við lyf sem innihalda efni á bannlista þá er það á hans ábyrgð að sækja um undanþágu vegna þess. Læknir íþróttamanns fyllir út umsóknina í samráði við íþróttamann eða foreldri/forráðamann hans, og lætur viðeigandi læknisfræðileg gögn fylgja umsókninni. Slíkar umsóknir eru svo í kjölfarið teknar fyrir hjá undanþágunefnd Lyfjaeftirlits ÍSÍ.
Ef íþróttamaður er í vafa með lyf eða efni sem hann neytir er hægt að hafa samband við Lyfjeftirlit ÍSÍ í síma 514-4022 og fá leiðbeinandi upplýsingar.
Umsókn fyrir undanþágu vegna notkunar á efni sem er á bannlista WADA má nálgast hér.
Uppfærðan bannlista WADA frá 1. janúar 2016 má nálgast hér og helstu breytingar sem tóku gildi má nálgast með því að smella hér.
Til baka