Badmintonfólk ársins 2012
Badmintonkona og badmintonmaður ársins eru Ragna Ingólfsdóttir, TBR og Kári Gunnarsson, TBR og Københavns Badminton Klub.
Ragna er langfremsta badmintonkona landsins. Hún varð Íslandsmeistari í badminton í mars síðastliðnum í einliðaleik og varð með því fyrsti íslenski badmintonspilarinn til að hampa Íslandsmeistaratitli í einliðaleik níu sinnum en auk þess hefur hún orðið tíu sinnum Íslandsmeistari í tvíliðaleik og einu sinni í tvenndarleik. Alls hefur hún unnið Íslandsmeistaratitil 20 sinnum. Þá vann hún öll þau mót sem hún tók þátt í hérlendis á árinu.
Ragna hefur verið í A-landsliði Íslands í badminton um árabil og keppti með landsliðinu fyrir Íslands hönd í Evrópukeppni kvennalandsliða í Svíþjóð í febrúar og í Evrópukeppni einstaklinga í Englandi í apríl.
Ragna tók þátt í einu til þremur alþjóðlegum mótum í mánuði undanfarin ár til að safna stigum á heimslistanum. Ragna hefur unnið til verðlauna á alþjóðlegum mótum en hún hefur meðal annars unnið Iceland International mótið fimm sinnum en mótið er innan mótaraðar Badminton Europe og gefur stig á heimslista.
Með góðri stöðu á heimslistanum vann hún sér inn þátttökurétt á Ólympíuleikunum í London í sumar í annað skipti en hún keppti einnig á Ólympíuleikunum í Kína árið 2008. Ragna var í kringum 70. sæti heimslistans allan fyrri hluta ársins og fram að Ólympíuleikum. Ragna komst hæst í 68. sæti heimslistans á árinu.
Ragna stóð sig frábærlega á Ólympíuleikunum í London í sumar. Keppt var í þriggja manna riðlum og Ragna mætti fyrst Akvile Stapusaityte frá Litháen. Ragna vann hana örugglega 21-10 og 21-16. Þá mætti hún Jie Yao frá Hollandi sem var raðað númer 4 inn á leikana en hún er upphaflega kínversk og er fjórða besta badmintonkona heims skv. heimslistanum. Ragna tapaði eftir hörkuspennandi aðra lotu sem endaði með naumum sigri Yao 21-12 og 25-23. Með sigri á Stapusaityte varð Ragna fyrsta íslenska konan til að vinna badmintonleik á Ólympíuleikum.
Eftir Ólympíuleikana í London lagði Ragna Ingólfsdóttir spaðann á hilluna eftir stórglæsilegan feril.
Kári er Íslandsmeistari í einliðaleik en Kári er búsettur í Danmörku og kom til landsins til að keppa á þessu eina móti á þessu ári.
Kári er í A-landsliðinu í badminton. Hann keppti með landsliðinu fyrir Íslands hönd á Evrópumóti karlalandsliða í Svíþjóð í febrúar og á Evrópumóti einstaklinga í Englandi í apríl. Hann hefur verið í unglingalandsliðum Íslands á undanförnum árum og spilaði fyrst með A-landsliðinu árið 2010.
Kári stóð sig best allra íslensku keppendanna í einliðaleik karla á Iceland International mótinu í nóvember síðastliðnum en mótið gefur stig á heimslista og er innan mótaraðar Badminton Europe. Þar komst hann í átta manna úrslit og vann meðal annars Jong Woo Yim frá Suður Kóreu sem flýgur hratt upp heimslistann þrátt fyrir að vera nýfarinn að taka þátt í alþjóðlegum mótum.