Handknattleikur
Handknattleiksmaður ársins:
2016, 2019 og 2020
Íþróttamaður ársins 2012
Fæddur:
19. júlí 1990
Hæð:
193 cm
Ólympíuleikar:
London 2012
Evrópumeistaramót:
2010 Austurríki Bronsverðlaun
Þýskur meistari með Kiel:
2010, 2012-2015
Champions League sigrar með Kiel:
2010, 2012
Ungverskur meistari með Veszprém:
2016, 2017
Spænskur meistari með Barcelona:
2018, 2019, 2020, 2021


.jpg?proc=200x200)
Aron Pálmarsson er íslenskur handknattleiksmaður og burðarás íslenska karlalandsliðsins í handknattleik. Hann er uppalinn FH-ingur og lék alla yngri flokkana með FH. Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með FH 1. mars 2006 þá aðeins 16 ára. Aron gekk til liðs við THW Kiel í Þýskalandi sumarið 2009 og spilaði þar í 6 ár, þar til hann flutti sig til MVM Vezprém KC í Ungverjalandi sumarið 2015. Aron var valinn mikilvægasti leikmaður á Final Four keppni Meistaradeildarinnar í lok maí 2016. Hann er nú vinstri skytta og leikstjórnandi spænska meistaraliðsins Barcelona, sem hann gekk til liðs við árið 2017. Hann varð þrefaldur meistari á Spáni á keppnistímabilinu 2017-2018 með Barcelona auk þess sem liðið komst í „final four“ úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu vorið 2019. Aron hefur blómstrað með liðinu þar sem liðið ber höfuð og herðar yfir önnur í heimalandinu auk þess sem það hefur verið eitt það sigursælasta í Meistaradeild Evrópu. Aron hefur verið sigursæll á sínum ferli og unnið marga titla með liðum sínum.
Sumarið 2021 mun Aron venda sínu kvæði í kross og skipta yfir til Álaborgar.
Aron hefur um árabil verið lykilmaður íslenska landsliðsins. Hann spilaði sinn fyrsta landsleik 29. október 2008 í Laugardalshöll á móti Belgíu og skoraði þar 2 mörk. Hans fyrsta stórmót var EM í Austurríki 2010 en þá vann liðið bronsverðlaun og síðan þá hefur Aron verið í lykilhlutverki með landsliðinu. Aron hefur leikið 152 (ritað 18.05.2021) landsleiki og skorað í þeim 593 mörk. Þá lék hann 47 leiki með yngri landsliðum og skoraði í þeim 214 mörk.
Aron er á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram.

