Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
21.11.2024 - 21.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
15

ÍSÍ úthlutar rúmlega 543 m.kr. í afreksstyrki

02.02.2022

Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur samþykkt tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ að úthlutun fyrir árið 2022, en styrkveitingar ÍSÍ til sambandsaðila nema alls rúmlega 543 milljónum króna og er um að ræða hæstu úthlutun Afrekssjóðs ÍSÍ frá upphafi.

Um er að ræða úthlutun í tveimur hlutum, en á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ í lok desember var úthlutað 220 m.kr. og á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ í janúar rúmum 323 m.kr.

Áhrif heimsfaraldurs COVID-19 á alþjóðlegt afreksíþróttastarf voru áfram umtalsverð á árinu 2021 en engu síður var margt um að vera í afreksíþróttastarfi sérsambanda og vonir eru bundnar við að alþjóðlegar keppnir fari að mestu fram með hefðbundnu sniði á árinu 2022.

Framlag ríkisins til Afrekssjóðs ÍSÍ hækkaði mikið á árunum 2016 til 2019 og var fyrir árið 2020 alls 400 milljónir króna. Framlag ríkisins vegna 2021 lækkaði um 8 milljónir króna og var 392 milljónir króna og áfram er framlag ríkisins sama upphæð, eða 392 m.kr. vegna verkefna ársins 2022. Afrekssjóður ÍSÍ er annars fjármagnaður með hlutdeild úr tekjum íþróttahreyfingarinnar frá Íslenskri Getspá samkvæmt ákvörðun Íþróttaþings ÍSÍ. 

Til Afrekssjóðs ÍSÍ bárust umsóknir frá 32 sérsamböndum. 30 sérsambönd hljóta að þessu sinni styrk vegna afreksíþróttastarfs og landsliðsverkefna og er um misháar upphæðir að ræða. 

Heildarkostnaður afreksíþróttastarfs hjá þeim sérsamböndum sem sóttu um til Afrekssjóðs ÍSÍ vegna ársins 2022 nema um 2.840 m.kr. og er stuðningur sjóðsins því að meðaltali rúmlega 19% af heildarkostnaði sérsambanda, sem er svipað og á síðasta ári, en þess má þó geta að árið 2016 var hlutfallið um 11%. Þó að úthlutun sjóðsins hækki lítillega á milli ára má sjá á gögnum sérsambanda að kostnaður við afreksíþróttastarfið heldur áfram að aukast og með þeim heimsfaraldri sem er í gangi hefur kostnaður við ferðalög og sóttvarnir aukist mjög mikið.

Sérsambönd eru flokkuð í þrjá afreksflokka, þ.e. A/Afrekssérsambönd, B/Alþjóðleg sérsambönd og C/Þróunarsérsambönd. Við ákvörðun á styrkupphæðum til sérsambanda er fyrst horft til flokkunar þeirra í afreksflokka. Eftir því hvaða flokki þau tilheyra er heimilt að veita þeim styrk vegna ákveðna málaflokka. Þannig hljóta sérsambönd grunnstyrk sem er mishár eftir flokki, styrk vegna þátttöku í HM/EM, styrk vegna hæfileikamótunar, vegna heilbrigðisteymis og vegna menntunar afreksþjálfara/landsliðsþjálfara. Í flokki A og B sérsambanda eru síðan fleiri flokkar sem eru styrktir, s.s. vegna verkefna alþjóðlegra dómara, verkefna yngri liða/einstaklinga, vegna Ólympíuundirbúnings og vegna einstaklinga. Það sem greinir samt helst á milli sambanda varðandi upphæðir er umfang þess afreksstarfs sem á sér stað hjá sambandinu. Þannig skila öll sérsambönd inn áætlun um verkefni ársins og fjölda þátttakenda og lengd verkefnis. Hvert mót fær ákveðinn stuðul eftir vægi mótsins samkvæmt skilgreiningu sérsambands. Úr þessum gögnum verður til mismunandi stigafjöldi fyrir hvert sérsamband og fær sambandið úthlutað hluta af styrknum samkvæmt þeim stigafjölda sem það mælist með.

Áhersluþættir sjóðsins sjást í úthlutun til sérsambanda og hvernig einstaka þættir eru styrktir.

Gerð var ein breyting á flokkun sérsambanda, en Bogfimisamband Íslands var fært úr flokki C/Þróunar sérsambönd í flokk B/Alþjóðleg sérsambönd.

Stjórn Afrekssjóðs ÍSÍ lagði til við framkvæmdastjórn að heimila frávik við reglugerð þannig að við flokkun sérsambanda fyrir árið 2022 yrði horft til árangurs síðustu fimm ára, en ekki fjögurra eins og áður, þar sem heimsfaraldur hefur haft víðtæk áhrif á möguleika íþróttafólks og þar með sérsambanda til að ná árangri á alþjóðlegum vettvangi á síðustu tveimur árum. Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti þá tillögu á fundi sínum og jafnframt að fara í ítarlega endurskoðun á reglum Afrekssjóðs ÍSÍ á komandi vori.

Í reglugerð Afrekssjóðs ÍSÍ er fjallað um kröfur um afreksstefnur sérsambanda sem uppfylla viðmið ÍSÍ. Þannig er lögð áhersla á að öll sérsambönd móti sér stefnu í afreksíþróttum sem hljóti umfjöllun og samþykki á sérsambandsþingi. Mismunandi kröfur eru þó gerðar til sérsambanda eftir afreksflokkum þeirra.

Í þessum tölum er verið að tala um heildarúthlutun til viðkomandi sérsambands og er nánari útfærsla skilgreind í samningum sem gerðir verða við sérsambönd á næstunni.

Áherslur ÍSÍ varðandi afreksstyrki mótast af Afreksstefnu ÍSÍ þar sem segir:

„Meginhlutverk Afrekssjóðs ÍSÍ í uppbyggingu afreksíþrótta á Íslandi er að styðja sérsambönd fjárhagslega og þar með íslenskt afreksíþróttafólk við að ná árangri í alþjóðlegri keppni. Forsenda styrkveitinga er að sérsambönd hafi markvissa og raunhæfa afreksstefnu, ásamt aðgerðaráætlun. Stuðningur sjóðsins felst í fjárframlögum vegna verkefna sem skulu vera fyrir fram skilgreind í aðgerðaráætlun viðkomandi sérsambands.”

Úthlutun Afrekssjóðs ÍSÍ til sérsambanda 2022

Flokkun

Sérsamband

Heildarúthlutun

2022

A

HSÍ – Handknattleikssamband Íslands

86.600.000

FSÍ – Fimleikasamband Íslands

62.700.000

KKÍ – Körfuknattleikssamband Íslands

50.500.000

SKÍ – Skíðasamband Íslands

42.550.000

FRÍ – Frjálsíþróttasamband Íslands

36.700.000

GSÍ – Golfsamband Íslands

36.350.000

SSÍ – Sundsamband Íslands

35.600.000

ÍF – Íþróttasamband fatlaðra

32.050.000

B

KRA – Kraftlyftingasamband Íslands

19.050.000

ÍHÍ – Íshokkísamband Íslands

13.550.000

BLÍ – Blaksamband Íslands

13.000.000

KLÍ – Keilusamband Íslands

12.075.000

DSÍ – Dansíþróttasamband Íslands

11.350.000

SKY – Skylmingasamband Íslands

10.600.000

BSÍ – Badmintonsamband Íslands

10.450.000

JSÍ – Judosamband Íslands

10.200.000

BFSÍ – Bogfimisamband Íslands

10.000.000

KAÍ – Karatesamband Íslands

9.650.000

LH – Landssamband hestamannafélaga

8.500.000

STÍ – Skotíþróttasamband Íslands

8.250.000

C

HRÍ – Hjólreiðasamband Íslands

3.300.000

ÞRÍ – Þríþrautarsamband Íslands

3.300.000

ÍSS – Skautasamband Íslands

3.300.000

TSÍ – Tennissamband Íslands

2.300.000

LSÍ – Lyftingasamband Íslands

2.300.000

BTÍ – Borðtennissamband Íslands

2.250.000

KÍ – Klifursamband Íslands

1.875.000

MSÍ – Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasamband Íslands

1.800.000

HNÍ – Hnefaleikasamband Íslands

1.750.000

SÍL – Siglingasamband Íslands

1.750.000

Alls

 

543.650.000