Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Fyrirlestur um Barna- og unglingastefnu ÍSÍ í Þingeyjarsveit

12.10.2012

Sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ var með fyrirlestur um stefnu ÍSí í barna- og unglingaíþróttum í Stórutjarnaskóla mánudaginn 8. október síðastliðinn.  Fyrirlesturinn var í samstarfi við HSÞ og forystumenn skólans.  Í lok fyrirlesturs var opnað fyrir umræður og var mikið rætt um stefnuna, gildi hennar og virkni.  Einnig var rætt um íþróttalíf í héraði, möguleika og áherslur.  Þetta var annar fyrirlesturinn sem ÍSÍ og HSÞ hafa boðið upp á innan starfssvæðis HSÞ á haustdögum, sá fyrri var á Kópaskeri í september síðastliðnum. 

Allar frekari uppl. um barna- og unglingastefnu ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs á vidar@isi.is eða í síma 460-1467.