Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Heidursholl_Sigridur.jpg (251910 bytes)

Sigríður Sigurðardóttir

Sigríður Sigurðardóttir var útnefnd í Heiðurshöll ÍSÍ á Íþróttamanni ársins þann 30. desember 2015.

Sigríður er fædd 20. ágúst 1942.  Hún var ein af fremstu handknattleikskonum sinnar kynslóðar, hafði verið fyrirliði Vals frá 1960 og leiddi meðal annars lið sitt til sigurs á Íslandsmótum. Árið 1964 varð hún fyrst kvenna til að verða valin Íþróttamaður ársins. Með kjörinu varð hún einnig fyrsti íþróttamaðurinn úr hópíþróttum til að hljóta þennan titil.
 
Sigríður var fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik þegar það hreppti Norðurlandameistaratitilinn í handknattleik á Laugardalsvelli árið 1964 en í þá daga var handknattleikur leikinn utanhúss. Var það fyrsti titill í hópíþrótt sem Íslendingar höfðu unnið.  Ísland hafði þá ekki spilað landsleik í kvennaflokki í fjögur ár og átta liðsmenn af fimmtán höfðu engan landsleik spilað fyrir mótið. Þessi eftirminnilegi árangur hafði mikil áhrif á handknattleik stúlkna og kvenna og varð umtalsverð fjölgun í kvennahandknattleik í kjölfarið. 
 
Sigríður  var, ásamt liðsfélögum sínum, mikil fyrirmynd ungra stúlkna á þessum tíma og hefur þessi sigur íslenska kvennalandsliðsins verið talinn hafa markað brautina varðandi aukna þátttöku stúlkna og kvenna í íþróttum á Íslandi.

Það er ÍSÍ mikill heiður að útnefna Sigríði Sigurðardóttur í Heiðurshöll ÍSÍ.

Myndasíða ÍSÍ - Sigríður Sigurðardóttir