Bjarni og Vala í Heiðurshöll ÍSÍ

Bjarna og Völu þarf vart að kynna en þau eru bæði verðlaunahafar í sinni íþrótt á Ólympíuleikum ásamt því að hafa unnið til fjölda verðlauna á mótum, bæði innanlands sem utan. Bæði áttu þau afar farsælan keppnisferil og eru miklar fyrirmyndir.
Meðfylgjandi mynd var tekin við þetta tækifæri af þeim Völu, Vilhjálmi og Bjarna. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands óskar Völu og Bjarna innilega til hamingju með útnefninguna.