Afreksþjálfun - Ráðstefna 24. janúar
Íþróttabandalag Reykjavíkur, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt Háskólanum í Reykjavík standa að íþróttaráðstefnu í tilefni af Reykjavíkurleikunum, fimmtudaginn 24. janúar og fer ráðstefnan fram í húsakynnum HR stofu M101. Þrír áhugaverðir erlendir fyrirlesarar munu flytja erindi um afreksþjálfun og fara fyrirlestrarnir allir fram á ensku.
Dagskrá:
17:30 Ólafur E. Rafnsson forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands setur ráðstefnuna.
17:35 Dr. Mike Callan – Hvernig getur júdóþjálfun nýst í öðrum greinum?
Í erindinu fjallar Mike, einn virtasti fyrirlesari alþjóða júdósambandsins, um það hvernig þjálfunarfræði í júdó getur nýst öðrum greinum. Áhersla verður lögð á hraða, snerpu og styrk.
18:30 Léttur kvöldverður í mötuneyti Háskólans í Reykjavík.
19:45 Harvey S. Newton – Ólympískar lyftingar
Harvey er fyrrum landsliðsþjálfari bandaríska landsliðsins í ólympískum lyftingum og einn virtasti fræðimaðurinn á því sviði. Í erindinu mun Harvey sýna fram á hvernig ólympískar lyftingar geta bætt afkastagetu flestra afreksíþróttamanna óháð íþróttagrein.
Skráning:
Ráðstefnugjald er kr. 3.000,- og er léttur kvöldverður innifalinn í gjaldinu. Skráning fer fram á netfanginu skraning@isi.is og er litið á greiðslu sem staðfestingu á þátttöku. Bankaupplýsingar: 0336 – 26 – 987 og kennitala 670169-1709 (ÍBR).
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 23.janúar. Hámarksfjöldi á ráðstefnuna er 140 manns en í fyrra komust færri að en vildu.