Sundfélagið Óðinn fyrirmyndarfélag ÍSÍ
30.01.2013Sundfélagið Óðinn á Akureyri fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ á uppskeruhátíð félagsins sem haldin var í Brekkuskóla á Akureyri þriðjudaginn 8. janúar síðatliðinn. Það var formaður félagsins, Halla Bergþóra Halldórsdóttir sem tók við viðurkenningunni úr höndum Viðars Sigurjónssonar skrifstofustjóra ÍSÍ á Akureyri. Félagið hefur nú rétt til að nota nafnbótina fyrirmyndarfélag ÍSÍ til næstu fjögurra ára. Á hátíðinni var Birkir Viktor Hannesson kjörinn sundmaður félagsins og þar með sundmaður Akureyrar.