Hjólað í vinnuna
06.05.2013Heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Hjólað í vinnuna, rúllar af stað í ellefta sinn næsta miðvikudag, 8. maí. Nú er í gangi skráningarleikur ÍSÍ og Rásar 2. Á hverjum virkum degi er dregið úr skráðum liðum í þættinum Popplandi á Rás 2. Í verðlaun eru viðgerðarsett, vatnsflöskur og dekkjaþrælar fyrir allt liðið frá Reiðhjólaversluninni Erninum.
Skráning og nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni hjoladivinnuna.is