Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23

Ólafur E. Rafnsson látinn

19.06.2013

Forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og forseti FIBA Europe, Ólafur Eðvarð Rafnsson, er látinn, fimmtugur að aldri.

Ólafur varð bráðkvaddur í Sviss nú fyrr í dag þar sem hann sótti  fund í miðstjórn FIBA World - Alþjóðakörfuknattleikssambandsins.

Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.

Ólafur starfaði sem lögmaður og rak eigin lögmannsstofu í Hafnarfirði.

Ólafur Eðvarð Rafnsson var formaður Körfuknattleikssambands Íslands frá árinu 1996 til 2006 en það ár var hann kosinn forseti ÍSÍ.  Ólafur var kjörinn forseti FIBA Europe árið 2010. Hann tók í lok síðasta mánaðar við stöðu forseta framkvæmdastjórnar Smáþjóðaleikanna.  Ólafur stundaði sjálfur körfuknattleik um árabil með Haukum og lék m.a. með landsliði Íslands.

Íþróttahreyfingin harmar fráfall góðs félaga og öflugs foringja og vottar fjölskyldu Ólafs sína dýpstu samúð.