Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
22

Richard Már endurkjörinn formaður TKÍ

01.07.2013

Ársþing Taekwondosambands Íslands var haldið 10. júní  síðastliðinn.  35 þingfulltrúar voru mættir þar og var Richard Már Jónsson endurkjörin formaður sambandsins.  Einnig voru Haukur Skúlason og Örn Helgason kosnir í stjórn. Boða þurfti til framhaldsþings og var það haldið 24. júní síðastliðinn.  Á framhaldsþinginu var ársreikningur sambandsins samþykktur. Síðasta starfsár Taekwondosambandsins hefur verið starfssamt og margir sigrar unnir bæði hér á landi í uppbyggingu íþróttarinnar út um allt land sem og stórir sigrar á erlendri grundu.

Fulltrúi ÍSÍ var Friðrik Einarsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og var hann jafnframt þingforseti þingsins.