Þorvaldur Jóhannsson sæmdur Gullmerki ÍSÍ
Íþróttafélagið Huginn fagnaði 100 ára afmæli sínu um síðastliðna helgi. Í tilefni af afmæli félagsins samþykkti framkvæmdastjórn ÍSÍ að veita Gullmerki ÍSÍ til Þorvaldar Jóhannssonar. Gunnar Bragason gjaldkeri ÍSÍ afhenti Þorvaldi merkið á afmælishátíð félagsins en mikið var um dýrðir á Seyðisfirði í tilefni þessara tímamóta.
Þorvaldur var um áratuga skeið forsvarsmaður skíðamála hjá Huginn en hann hefur alla tíð verði íþróttaiðkandi og stundaði sjálfur fjölmargar greinar. Í seinni tíð hefur aðaláhersla hans verið á skíði og golf.
Þorvaldur var formaður Hugins frá 1968 til 1971. Hann hefur beitt sér mikið fyrir uppbyggingu íþróttaaðstöðu á Seyðisfirði og komið með margvíslegum hætti að íþróttastarfinu sem íþróttakennari, íþróttaforystumaður og bæjarstjóri. Þar má nefna skíðaastöðu í samvinnu við Héraðsmenn, byggingu nýs íþróttahúss og endurbætur á knattspyrnuvellinum.
Þorvaldur veitir nú formennsku í ritnefnd veglegs afmælisrits í tilefni af 100 ára afmæli Hugins. Hann er glæsilegur fulltrúi þess mikla starfs sjálfboðaliða sem einkennt hafa öflugt íþrótta- og félagslíf á Seyðisfirði undanfarna áratugi.