Samkeppni um hönnun verðlaunagripa YOG 2014
04.09.2013Alþjóðaólympíunefndin hefur hrundið af stað samkeppni um hönnun á framhlið verðlaunapeninga fyrir Sumarólympíuleika ungmenna (YOG) sem haldnir verða í Nanjing í Kína á næsta ári.
Samkeppnin er öllum opin og verður hægt að senda inn tillögur sínar í gegnum eftirfarandi vefslóð þar til 30. nóvember 2013: http://www.medaldesigncompetition.com/
Vinningstillagan verður notuð á framhlið gull-, silfur- og bronsverðlauna leikanna.

Sá sem sigrar samkeppnina hlýtur að launum ferð á Setningarhátíð leikanna ásamt því að fá sett af verðlaunagripunum með hönnun sinni.
Tilkynnt verður um úrslitin í samkeppninni í desember næstkomandi.