Fjármálaráðstefna ÍSÍ 2013
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Fj%c3%a1rm%c3%a1lar%c3%a1%c3%b0stefna%20%c3%8dS%c3%8d%202013%20-%20Augl%c3%bdsing%202x12.jpg?proc=400x400)
Fjármálaráðstefna ÍSÍ verður haldin í Laugardalshöll föstudaginn 29. nóvember næstkomandi kl. 13:00-16:00. Ráðstefnan mun að þessu sinni fjalla um rekstrarumhverfi íþróttafélaga og íþróttahreyfingarinnar í heild sinni.
Helstu lykiltölur um rekstur íþróttahreyfingarinnar verða kynntar og þróun síðustu ára.
Fulltrúar fimm félaga á landsvísu munu taka til máls og skýra frá helstu þáttum í rekstri sinna félaga og því rekstrarumhverfi sem íþróttafélög búa við þessa stundina.
Í lokin verða umræður.
Skráning er á netfangið skraning@isi.is