Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
22

Formannafundur ÍSÍ

03.12.2013Árlegur Formannafundur ÍSÍ var haldinn föstudaginn 29. nóvember sl. í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.  Fundurinn er upplýsingafundur framkvæmdastjórnar ÍSÍ og formanna sérsambanda, héraðssambanda og íþróttabandalaga, þar sem framkvæmdastjórn ÍSÍ gefur skýrslu um helstu þætti í starfsemi ÍSÍ og verkefni á milli þinga.  Í upphafi fundar minntust fundargestir látinna félaga úr íþróttahreyfingunni og Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ flutti minningarorð um Ólaf E. Rafnsson forseta ÍSÍ sem varð bráðkvaddur 19. júní sl.
Að loknum fundi bauð ÍSÍ fundargestum til kvöldverðar í Café Easy.