Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
26

Sunddeild Njarðvíkur Fyrirmyndardeild ÍSÍ

17.12.2013Sunddeild Njarðvíkur fékk endurnýjun viðurkenningar deildarinnar sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ laugardaginn 15. desember síðastliðinn á Aðventumóti félagsins í Vatnaveröld.  Það var Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti forystuaðilum deildarinnar viðurkenninguna.  Sigríður var reyndar svo heppin að verða vitni að tveimur Íslandsmetum í 1500m skriðsundi í flokki meyja og sveina.  Á myndinni eru frá vinstri, Sigríður Jónsdóttir, Anna Steinunn Gunnlaugsdóttir varaformaður deildarinnar og Harpa Kristín Einarsdóttir formaður.